Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1978, Page 5
húsmóðir og forstöðumaður Nonnahússins á Akureyri,
Ingólfur, kennari og Kristján, útgerðarmaður.
Þorsteinn á Vatnsleysu, formaður Búnaðarfélags Islands,
sagði stundum frá því, að kynslóð hans hefði lifað í þúsund ár.
Með því átti hann við það, að í uppvexti hans var búið í
landinu á flestan hátt eins og fyrir þúsund árum. Eg held, að
þessi kynslóð, aldamótakynslóðin, sé lánsamasta kynslóð, sem
á Islandi hefur lifað. Hún breytti landi og þjóð úr frumstæðu
og fátæku þjóðfélagi í velmegandi þjóðfélag, sem getur talið
sig til jafningja, hvar sem er á byggðu bóli í afkomu og
menningu. Þetta gerðist ekki af sjálfu sér. Þetta gerðist fyrir
elju og ósérplægni manna samfara hugsjónum þeirra og trú á
land og þjóð. Armann Dalmannsson var í hópi beztu fulltrúa
þessarar kynslóðar.
Það er bjart yfir minningu hans.
Matthías Eggertsson.
7