Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1978, Page 6
JÓHANNES SIGVALDASON:
RÆKTUNARFÉLAG NORÐURLANDS
1953-1978
INNGANGUR.
Ræktunarfélag Norðurlands er orðið 75 ára. Þegar þessum
aldri er náð, þykir sjálfsagt a.m.k. þegar mannskepnan á í
hlut, að minnast þess að nokkru þegar hver hálfs tugs eða tugs
trappa er stigin. Kemur hér til að nú er aldur farinn að færast
yfir, ævikvöld komið, og því rétt að fagna oft, náðum áfanga.
Ef til vill hyggur einhver, að ekki sé viturlegt að bera saman og
leggja að jöfnu félög og fólk. Hér skilur þó ekki eins mikið og
ætla mætti. Upphaf og stofnun félags, ekki síst félags í líkingu
við Rf., má vel líkja við aðdraganda að tilurð og fæðingu á
nýjum einstaklingi. Mikil gleði og eftirvænting ríkir vegna
komu barns í heiminn og á fyrstu dögum þess eru margir sem
taka vilja þátt í þeirri gleði og þeirri von sem nýjum þegni
fylgir. En þegar frá líður kemur hinn kaldi veruleiki með
barnsgrát og bleyjuvaski. Veikindi og erfiðleikar steðja að og
löngum var það svo að mörg börn dóu ung. Mér sýnist að
margt sé líkt með barni og félagi fyrstu árin og samlikingin
geti raunar náð yfir æviskeið allt. Fyrstu skrefin eru félagar
fullir af bjartsýni og áhuga, upptendraðir af hugsjón þess
málefnis sem fyrir er barist, síðan kemur hinn grái hvers-
dagsleiki og margt félagið hefur hrokkið upp af úr barna-
sjúkdómi og ónógri umhyggju á fyrstu dögum. Ræktunar-
félag Norðurlands stóðst þessa raun án efa vegna góðrar um-
önnunar í vöggu og fyrstu fótmálin. A gelgjuskeiði og oftar
8