Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1978, Side 38

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1978, Side 38
samlega nýttir verðum við því að skilgreina hvað við álítum æskilega þróun. Að halda því fram að þróunin stjórnist af lögmálum framboðs og eftirspurnar og sé því ekki beint undir okkar stjórn er einföldun. Sumir segja að nýtingin stjórnist af lágu orkuverði, aðrir að niðurgreiðslukerfi ráði mestu og enn aðrir að þetta sé aðeins þáttur í almennri iðnþróun. Hverjir sem aðaláhrifavaldarnir í hagkerfinu eru þá á framtíðarþró- unin að byggjast á ákvarðanatöku um hvers konar landbúnað við viljum hafa, hvaða mat við óskum að fá í framtíðinni, hvernig við viljum að hann sé framleiddur og hvort við óskum að þéttbýlisþróunin haldi áfram eða verði snúið við. Þetta er sú stefnumörkun, sem stjórnvöld og almenningur verða að fást við. í lokin leggur Blaxter áherslu á að Bretar eigi sjálfir að móta sína landbúnaðarstefnu, hvort sem hún falli í kramið hjá hinum Efnahagsbandalagsþjóðum eður ei. Skipuleggja verði hlutina, því að hann lýsir þeirri skoðun sinni að hann sé ósammála þeirri almennu skoðun að almannaheill sé best tryggð með að láta hlutina stjórnast af lögmálum framboðs og eftirspurnar. Leggja á alla áherslu á að auka sjálfsbjargargetu. Að síðustu leggur hann áherslu á að til lengri tíma verði að leita lausna sem byggja á landbúnaði í meira jafnvægi, i stað þess að byggja á óþekktum hlutum. Til lausnar slíkum vandamálum þörfnumst við vísindamanna á borð við John Hammond. Barry Commoner er bandarískur vistfræðingur. Hann starfar í New-York við Center for the Biology and Natural System (CBNS) og Scentist‘s Institute for Public Information (SIPI). Hann er talinn einn virtasti vistfræðingur í heimi. Arið 1971 birtist bók hans The closing circle, sem var tíma- mótaverk í umræðum um mengunarmál. Arið 1976 gaf hann út bókina The poverty of power, þar sem safnað er saman ótrúlegu magni upplýsinga um orkumál og fjallað um þau mál á einstaklega skýran og aðgengilegan hátt. Hann bendir á að þó að hann teljist höfundur bókarinnar, þá sé hún í raun verk hans og samstarfsmanna hans, enda næsta ótrúlegt að 40
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.