Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1985, Page 33
VIII. NIÐURSKURÐUR I SKAGAFIRÐI
Skagafjarðarsýsla er vafalítið sú sýsla sem lengst hefur verið
ásótt af riðu. Þó er fjarri lagi að sýslan öll sé undirlögð. Ekki
kann ég frá að segja hverju það er að þakka þar eð spor
veikinnar milli bæja og sveita eru ekki djúp og næsta
ómögulegt getur reynst að rekja þau. En þegar hún hefur
viðkomu á bæjum fer það ekki framhjá neinum hvort sem um
lengri eða skemmri dvöl er að ræða. Þrátt fyrir að eiga það á
hættu að smit berist i nýjan fjárstofn, réðust sjö bændur í
Firðinum í niðurskurð á fé sínu haustið 1981. Flestir lóguðu
öllu fénu en einn hluta þess. Þessir bændur búa allir í aust-
anverðum Skagafirði og búa á Bakka i Viðvíkursveit, Sleitu-
stöðum í Elólahreppi, og Þúfum, Skuggabjörgum, Gröf og
Brúarlandi í Hofshreppi. Bjarni bóndi Maronsson i Ásgeirs-
brekku í Viðvikursveit lógaði hluta af fé sínu og síðar öllu.
Umræddur niðurskurður fór fram að frumkvæði bændanna
sjálfra án vissu um bætur. I ofangreindum þremur hreppum
eru starfandi þriggja manna riðunefndir, ein í hverjum
hreppi. Auk þeirra einn trúnaðarmaður í hverjum hreppi og á
hann að vera milligöngumaður bænda annars vegar og
dýralæknis og Sauðfjárveikivarna hins vegar.
Það er greinilegt að ýmsum aðferðum hefur verið beitt til
að ráða niðurlögum riðunnar, bæði af hálfu Sauðfjárveiki-
varna og bænda. Það sem á stærstan þátt í því hve lítinn
árangur allar varnir hafa borið er þekkingarleysi á orsökum
veikinnar og smitleiðum. Vissulega má halda aftur af veik-
inni, alveg eins og auðvelt er að hjálpa til við útbreiðslu
hennar með kæruleysi í meðferð fjár og sóðalegu umhverfi
þess.
Uppi eru ýmsar kenningar varðandi það hvað best sé að
gera til varnar veikinni. Ég ætla mér ekki það vald að dæma
um það. Tel enda að mörgu þurfi að glöggva sig á áður en
slíkur dómur er felldur. Ég álít að þekking okkar nú gefi
tæplega möguleika til svo stórra orða. Þar að auki eru að-
stæðurnar svo mismunandi á allan hátt að betur gæti gefist að
beita einni aðferð hér og annarri þar. Það er svo ótal margt
35