Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1985, Blaðsíða 4
Þegar Sigurður var 6 vetra gamall missti hann föður sinn.
Móðir hans giftist aftur frænda sínum Guðmundi Sigurðssyni
og hófu þau búskap að Úlfarsfelli í Mosfellssveit og bjuggu
þar til ársins 1898 að þau fluttu til Reykjavíkur. Ári síðar dó
Guðmundur og stóð þá Sigríður ein með fimm börn en fimm
hafði hún misst, enda ungbarnadauði þungbær kvöl sem
margar íslenskar mæður urðu að þola á þessum tíma. Sjálfur
var Sigurður sem kornabarn svo langt leiddur af barnaveiki
að honum var ekki hugað líf. Manni með læknishendur tókst
þá með hrafnsfjöður að vopni að fjarlægja skófirnar úr hálsi
barnsins og mátti ekki tæpara standa. Af þessari ástæðu taldi
Sigurður, að sér hefði alltaf verið hlýtt til hrafna.
Sigríði frá Hörgsholti er svo lýst, að hún hafi verið fríð-
leikskona, kjarkmikil, dugleg, skýr og skáldmælt eins og
margt fólk af hennar ætt.
Sigurður settist í lærða skólann aldamótaárið. Á þeim ár-
um var ólga og átök töluverð í lærða skólanum og svo fór að
Sigurður og fimm bekkjabræður hans hættu námi að loknum
fjórða bekk. Haustið eftir hóf Sigurður nám við dýralækna-
skólann í Kaupmannahöfn. Sóttist honum námið vel, undi
sér ágætlega í hópi danskra stúdenta og hélt tryggð við marga
þeirra og kennara sína æ síðan. Síðar leitaði hann oft til
kennara dýralæknaskólans i Kaupmannahöfn með ýmis
vandamál, og var jafnan vel tekið.
Að loknu námi 1910 vann Sigurður um skeið í Danmörku,
en hélt síðan með ungri eiginkonu sinni Guðrúnu Louisu
heim til íslands og var skipaður dýralæknir á Norðurlandi
með aðsetri á Akureyri.
Ekki höfðu Norðlendingar áður kynnst dýralæknum eða
störfum þeirra og tóku því hinum unga dýralækni með
nokkuð fálátri tortryggni og vantrú. Þetta breyttist þó skjótt,
þegar þeir kynntust hinu hressilega og glaða viðmóti Sigurðar
og hve mjög hann gerði sér far um að leysa störf sín sem best af
hendi. Sigurður varð fljótlega allra manna vinsælastur í hér-
aði, fólk hlakkaði til komu hans, enda auðnaðist honum að
leysa margan vanda. Hélst svo þann aldarþriðjung sem hann
starfaði á Akureyri. Um það hafa margir borið vitni fyrr og
6