Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1911, Síða 3
5
snertir, og þyrfti að reyna að hafa áhrif á það.
Stjórnin skrifaði Bergenska gufuskipafélaginu í vetur
og fór fram á að fá niðursett farmgjald fyrir Sam-
bandið. Fékk það hinar beztu undirtektir, svo að
látið var alveg að óskum stjórnarinnar. Nú þarf
að halda áfram við bað félag samningaleiðina og fá
það til að taka fleiri hafnir á Sambandssvæðinu
upp á áætlun, t. d. Reyðarfjörð.
8. Um störf ráðunauts vísast að öðru leyti til skýrslu
hans um störf hans árið 1911—12.
9' Uthlutað hefir verið verðlaunum fyrir góða hirðingu
áburðar í báðum Múlasýslum, 75 kr. í hverri, og
fengið fé frá þeim háðum, til þess að halda áfram
í sömu stefnu. Þetta er rétt spor, enda þyrfti Sam-
bandið að leggja áherzlu á áburðarmálið.
10. Piægingar og plægingarkensla hefir nú komizt á,
með styrk frá Búnaðarfél. Isl. Plægingarnar voru
boðnar út í öllum búnaðarfélögum Sambandsins
veturinn 1910—11, en ekkert verkefni fékkst á þann
hátt. Fór þá stjórnin prívatleiðina, og fékk ein-
staka menn til að ríða á vaðið, og fékk á þann
hátt svo mikil vinnuloforð, að ráðizt var í að ráða
plógmann. Síðan plógmaðurinn var ráðinn hefir
verið pöntuð nokkur vinna að auki, svo að nú þegar
er nóg sumarvinna fyrir manninn. Plægingar hafa
þegar farið fram nær 3 vikur og ganga mjög vel
og útlitið er ágætt, þegar hestarnir fara að æfast,
svo að von má gjöra sér um, að áhugi á plægingum
vakni hjá almenningi, þegar árangurinn sést frá
þessu sumri.
Búnaðarsambandið leggur til hesta og verkfæri,