Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1911, Blaðsíða 4
6
og verður þeim kostnaði jafnað niður á vinnudaga
að afstöðnum plægingunum í haust.
Hér við má athuga, að stjórnin telur heppilegt
og jafnvel nauðsynlegt, að sambandið gangist fyrir
herfun á hinni plæðgu jörð, t. d. á næsta ári og
mun leggja það atriði fyrir fundinn.
11. Ráðunautur Sambandsins Benedikt Kristjánsson
sagði upp starfa sínum frá 1. þ. m. Með þvi að
ólíklegt þótti, að til starfans fengist vel hæfur mað-
ur í hans stað án launahækkunar, en slíkur maður
var hér til staðar, þektur fyrir starfsemi sína bæði
við gróðrarstöðina og skólann hér, var starfinn
ekki auglýstur, heldur ákvað stjórnin að sameina
hann við aðstoðarkennarastarfann við Eiðaskóla. Við
þetta vanst fyrst og fremst það, að fyrirbyggja yfir-
vofandi launahækkun og í öðru lagi lítilsháttar
launahækkun (50 kr.) frá því sem verið hefir. Þessi
ráðstöfun verður lögð undir samþykki fundarins.
12. Það hefir verið leikið ískyggilega mikið af búnaðar-
félögum ýmsum utan Fljótsdalshéraðs, að ganga úr
Sambandinu, annaðhvort beint, eða óbeint með því
að láta hin fornu félög deyja, sem voru í Sam-
bandinu og stofna ný félög, sem svo ekki ganga í
Samb. Ut af þessu tók stjórnin þá ákvörðun síðastl.
vetur, að vinna eftirleiðis kauplaust að eins fyrir
búnaðarfélög, er í Samb. væru, og aðeins fyrir þá
einstaka menn, er væru meðlimir slíkra félaga, en
væri unnið fyrir aðra, þá að taka 6 kr. fyrir hvern
vinnudag starfsmannna Samb. og tiltölulega fyrir
parta úr dögum. — Þessi ákvörðun verður lögð
undir &lit og endilega ákvörðun fundarins.