Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1911, Side 6
8
Þær sýningar komust ekki á, af því að sambandinu
var ókunnugt um fjárveitingu til þeirra úr sýslusjóði
sem þó hafði farið fram.
Stjórnin sótti því um til Búnaðarfél. Isl. að fjár-
veitingin til sýninganna mætti standa til hausts 1913
og var það samþykt.
Auk þess var sótt um 225 kr. styrk til Búnaðar-
fél Isl. til hrútasýninga i Fljótsdalshéraði haustið
1913; er það veitt og útvegað fé á móti frá sýslu-
sjóðum.
Stendur þannig til að sýningar fari fram í 13
hreppum á Sambandssvæðinu næsta haust, og verð-
ur það hlutverk væntanlegrar stjórnar að koma
þeim á.
3. Með því að kynbótabúið á Hreiðarsstöðum hafði lagst
niður árið 1912, en illt þótti að hætta þar með til-
raunum með kynbætur á sauðfé, kom stjórnin á stað
sauðfjárskoðun á Héraðinu síðastl. vetur, í því skyni
að velja hæfan stað til stofnunar nýju kynbótabúi.
Árangurinn af því varð sá, að væntanlega verður
slíkt bú stofnað á Rangá næsta haust.
Skýrsla um fjárskoðunina er til sýnis fundarmönn-
um lögð fram.
4. Verðlaunum fyrir góða hirðingu nautgripa og sauð-
fjár hefir verið úthlutað í 5 hreppum, og er það tals-
verð framför frá síðustu árum. Skoðunarmenn
tregðulaust valdir að tillögum Sambandsins.
5. Verðlaun hafa og verið greidd fyrir góða hirðingu
áburðar í S.-M.sýslu, en þó ekki unnist upp fjárveit-
ingin til þeirra í þetta sinn. Engin i N. M.sýslu.
Utvegað er fé frá Suður- og Norður-Múlasýslu til
framhalds því máli næstu ár, 75 kr. frá hvorri.