Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1911, Síða 22
24
Skýrsla
til Búnaðarsamlbaiids Austurlands um störf mín
árið 1911.
Helstu störf mín á árinu, hafa verið ]>au sem
nú skal greina.
Ferðalög. Þau hefi eg haft talsvert mikil í ár,
einkum í sumar. Hefi eg ferðast um Breiðdal, Stöðv-
arfjörð, Fáskrúðsfjörð, Reyðarfjörð, Eskifjörð, Vopna-
fjörð og Skeggjastaðahrepp í Norður-Múlasýslu, og auk
þess hefi eg ferðast um ýmsa hreppa á „Héraði“. Hefi
eg alls verið í ferðalagi rúma 180 daga.
Á þessu ferðalagi hefi eg gefið leiðbeiningar um
garðrækt, grasrækt, framræslu, vatnaveitingar. vatns-
leiðslu í hús, um geymslu og notkun áburðar, um bygg-
ingu áburðarhúsa og safnfora, mælt fyrir girðingum og
framkvæmt land- og hallamælingar á nokkrum stöðum
og auk þess veitt einstökum mönnum aðstoð við sán-
ingu grasfræs og korns. Einnig hefi eg skoðað hirðingu
og meðferð áburðar hjá þeim búendum í Norður- og
Suður-Múlasýslum, sem sótt hafa til Búnaðarsambands
Austurlands um verðlann fyrir góða hirðingu og með-
ferð áburðar. En þar sem sérstök skýrsla hefir verið
gefm Sambandsstjórninni um þessa áburðar skoðun
verður hennar ekki minnst hér frekar.
I ferð minni uin Vopnafjörð og Skeggjastaðahrepp
var eg á héraðssýningu sem haldin var á sambands-
svæðinu norðan Smjörvatnsheiðar að Nýpi í Vopnafirði,
en þar sem eg hefi gefið sérstaka skýrslu um þessa
sýningu sleppi eg að minnast hennar frekar hér.
Þess skal getið að hr. búfræðiskand. B. G. Blön-
dal, sem ráðinn var verkstjóri við gróðrarstöðina á Eið-