Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1911, Qupperneq 23
25
um siðastl. sumar, hefir farið sumt af þessum leiðbein-
ingarferðum fyrir mig, en eg hefi þá haft verkstjórn í
gróðrarstöðinni á meðan.
Pantanir. Þær hafa verið með mesta móti í ár.
Hefi eg pantað fyrir félög og einstaka menn girðingar-
efni, verkfæri, vatnsleiðslupípur og dælur, útsæði, tilbú-
inn áburð ofl. fyrir ca. kr 7000,00. Eru pantanir þess-
ar orðin talsvert stór þáttur í slarfsemi Búnaðarsam-
bandsins en ilt verk og óþakklátt eru þær, einkum þar
sem menn eru almennt mjög skeytingarlausir með að
senda pantanir á réttum tima þ. e. um nýjár, eins og
þó ætíð er tekið fram á verðlistunum. En mér hefir
ekki þótt rétt að neita að taka á móti pöntunum, þótt
þær kæmu á ýmsum tímum árs, en ætla sambandsstjórn-
inni að taka ákvörðun um, hvort það skuli gert fram-
vegis eða ekki. En eg vil benda á það að þegar sú
regla er höfð, sem sambandið hefir notað undanfarin
ár, og hefir gefist mjög vel, að láta seljendur senda
vörurnar móti eftirkröfu, verður móttakandi að vera til
staðar þegar vörurnar koma til þess að geta tekið móti
þeim og borgað þær. Og þess fleiri sendingar sem
maður á þann hátt fær, þess oftar verður maður að
vera viðstaddur skipakomur, og getur það tekið allmik-
inn tíma bæði að vorinu og sumrinu, og kemur eigi
sjaldan í bága við önnur störf. Þar við bætist að menn
eru oft all hirðulausir með að veita pöntuðum vörum
móttöku, og vilja að sambandið eða starfsmaður þess
ábyrgist vörurnar þar til þeim — eigendum — þóknast
að taka þær, þótt það sé hálfu missiri eftir að þeim hef-
ir verið tilkynt að þær væru komnar.
Kensla. Kenslu hefi eg haft nokkra þetta ár, hefi
eg kent garðyrkjufræði við búnaðarskólann á Eiðum,