Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1911, Side 38
40
hana; einkum verða mikil brögð að þessu eftir að fé
kemur af fjalli, jafnvel þótt öll sú árvekni sé viðhöfð,
sem unt er. Fyrir þann tíma er ómögulegt að vera
búinn að koma rótarávöxtum svo undan, að eigi geti
truflað samanburð á tilraunum. Af þessum ástæðum
þá skal þess aðeins getið að Bortfeller A. og B. gáfu
talsvert meiri eftirtekju en notkrar aðrar eða 71,0 kg.
pr. ara = 2272 kg. af dagsláttu. Lélegust reyndist
Svensk Kaalrot er gaf tæp 1000 kg. af dagsláttunni.
5. Bygg, hafrar, rúgur.
Samanburðartilraunir urðu eigi gerðar í ár nerna
af 5 tegundum af byggi og höfrum og voru þau þessi:
Svalöf Svanhalskorn, Svalöf Guldregnhavre, Svalöf Li-
gowhavre, Forædlede Dalhavre, (Þessar tegundir eru
frá Svalöf í Svíþjóð) og hafrar frá Jes Zimsen í Reykja-
vík. Aðrar af tegundum þeim sem ætlaðar voru til til-
rauna komu ekki fyr en seint á sumrinu, vegna hafn-
arverkfallsins enska.
Húsdýraáburður var enginn til. Kalí og fosfórsýra
voru borin á fyrir sáningu og herfuð niður. Chilisalt-
pétur eigi fyr en plönturnar voru komnar upp.
Alls var notað af áburði kg-
Áburðartegund á ara á hektara á dagsláttu
18% Superfosfat ' 2,0 - 200,o 64,0
37% Kalisalt “ l»o ■ o © o 32,0
Chilisaltpétur “ l»o • 100, o 32,o
Sáðtíminn var 31. maí. Breiðsáð 2 kg. pr. ara.
Tilraunin tvöföld.
Tegundir þessar uxu mikið vel og fremur jafnt. Bygg-
ið blómgaðist heldur á undan höfrunum og var yfirleitt
fremur á undan þeim að vexti og þroska. Ekki var