Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1970, Side 10
10
LAN D SB ÓKASAFNIÐ 1969
Pétur keypt árinu áður nokkur gömul sjókort í Kaupmannahöfn í kortasafn íslenzku
sjómælinganna, og fylgdi þá fyrrnefndur uppdráttur með í kaupunum.
Magnús Már Lárusson prófessor, nú háskólarektor, grófst að ósk Péturs fyrir um
uppruna kortsins, og birtum vér í þessari Arbók greinargerð Magnúsar ásamt mynd
af kortinu.
Eins og fram kemur síðar, hélt Landsbókasafn sýningu á handritum ungra íslenzkra
skálda og rithöfunda í tilefni af rithöfundaþingi í október. Alls 33 skáld og rithöf-
undar sendu handrit á sýningu þessa samkvæmt tilmælum Landsbókasafns, en 23
þeirra gáfu síðan safninu þau handrit, er þeir höfðu lagt til.
Bréf drs. Jóns Stefánssonar til Eiríks Benediktz sendiráðunautar í London. Gefandi:
Eiríkur Benediktz.
Handrit ýmiss konar eftir Jón G. Sigurðsson í Hofgörðum (d. 1950). Gjöf frá
Braga syni hans, er gaf einnig hluta af sendibréfasafni sínu.
Sjö bréf Nínu Tryggvadóttur til drs. Gunnlaugs Þórðarsonar. Gjöf hans um hendur
Aðalgeirs Kristj ánssonar skjalavarðar.
Kjartan Olafsson brunavörður gaf safn bréfa, er honum hafa borizt.
Handrit Gunnars Þorsteinssonar, lengi póstmanns í Reykjavík (d. 12.12. 1968).
Gjöf frá systkinum Gunnars, Kristínu og Guðmundi, sem búsettur er í Los Angeles,
um hendur Jóns Aðalsteins Jónssonar cand. mag.
Bréf, er varða Stórstúku íslands. Valdimar Þórðarson kaupmaður afhenti.
Einar Guðmundsson frá Hraunum, skrifstofumaður í Reykjavík, er gefið hefur
Landsbókasafni fjölda handrita undanfarin ár, færði því enn nokkur handrit, rit-
gerðir, kvæði og rímur eftir sjálfan hann.
„Tómstundaskrif“ Valdimars Þorvaldssonar frá Suðureyri, I-IV. Gjöf höfundar.
Egill Sigurgeirsson afhenti Fundargerðir Stúdentafélagsins í Reykjavík 1915 (9.
des.) - 1935.
Rúnar Hauksson, formaður íslendingafélagsins í Stokkhólmi, afhenti fundargerða-
bækur Félags islenzkra stúdenta í Stokkhólmi 1934-1960, tvær bækur, ennfremur
gestabók.
Dr. Richard Beck gaf eiginhandarrit kveðju þeirrar, er hann flutti á 25 ára afmæli
lýðveldisins 17. júní 1969 og nefndi Brú frændseminnar.
Arnfinnur Jónsson, fyrrv. skólastjóri, gaf bréf, er hann hafði fengið frá Gustav
Wolf, Halldóri Laxness og Jóhanni Jónssyni, og fylgdu bréfunum úrklippur og fleiri
gögn varðandi Jóhann.
Skúli Þórðarson sagnfræðingur gaf nokkur bréf Jóhanns Jónssonar rituð gefanda.
Kristjana Ekman, Sunland, Calif., afhenti sem dánargjöf Leifs Sigurðssonar, bróð-
ursonar Gests Pálssonar, fáein gögn, komin úr fórum skáldsins eða varðandi hann.
Hluti umræddra gagna bárust safninu um hendur Björns Jónssonar lögregluþj óns í
Reykj avík.
T0nnes Wichman Matthiessen læknir í Fredericia á Jótlandi gaf eiginhandarrit sr.
Friðriks Friðrikssonar af síðari hluta ævisögu hans á dönsku, ennfremur þrjú sendi-