Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1970, Qupperneq 11
LANDSBÓKASAFNIÐ 1969
11
bréf sr. Friðriks til E. Ch. W. Matthiessens, föður læknisins. Gjöfinni fylgdu m. a.
ljósrit af einu bréfi sr. Friðriks til T. W. Matthiessens, fjórar ljósmyndir og blaðaúr-
klippur.
Eins og skýrt var frá á sínum tíma, gaf Reykjavíkurborg Landsbókasafni á 150
ára afmæli þess fé til kaupa á myndum af íslenzkum bréfasöfnum, varðveittum i
dönskum söfnum. Verður þessara mynda aflað í áföngum, og fengum vér þannig á
árinu myndir af bréfasafni Jóns Arnasonar í Konungsbókhlöðu í Kaupmannahöfn og
af bréfasafni Finns Magnússonar prófessors í Ríkisskjalasafninu danska.
Keyptar voru á vegum Landsbókasafns á uppboði hjá Sotheby í London í maímán-
uði myndir úr Stanley-leiðangrinum til Orkneyja, Færeyja og Islands 1789. Myndirnar
eru í einni bók, og eru nú í henni 116 myndir og uppdrættir, pennateikningar, margar
í frumdráttum, en aðrar unnar til meiri hlítar og litaðar. Myndirnar hafa verið nokkru
fleiri í öndverðu, eins og ráða má af gamalli myndaskrá framan við bókina. Röskur
þriðjungur þeirra er frá Færeyjum.
Keypt voru af Guðmundi Egilssyni fornbóksala nokkur tölublöð blaðsins La Maten-
stelo, er Sigurður Kristófer Pétursson gaf út á esperanto, þegar hann lá sjúkur í Laug-
arnesi.
Guðmundur seldi safninu einnig Sögu- og rímnabók, er á var m. a. saga af Sigurði
þögla.
Aðrir, bæði einstaklingar og stofnanir, sem afhent hafa handrit, án þess að þeirra
sé getið nánara, eru: Arnór Sigurjónsson, dr. Björn Sigfússon, dr. Finnur Sigmunds-
son, Geir Jónasson 1. bókavörður, sr. Gísli Brynjólfsson, Hansína Jónsdóttir, Morris
R. Spivack, Sigurður Benediktsson uppboðshaldari, Reykjavík, Thordur Swinburne,
Calgary, Þóra Elfa Björnsson, Þorsteinn Eiríksson yfirkennari, Reykjavík. - Orðabók
Háskóla Islands, Þjóðskjalasafn Islands.
Landsbókasafn færir öllum gefendum handrita beztu þakkir.
SYNINGAR Þessar sýningar voru haldnar á árinu:
Sýning í tilefni af hafísráðstefnu í Reykjavík.
Gunnar Gunnarsson skáld áttræður (18.5. 1969). Sýning 18. maí-30. júlí.
Tveggja alda afmæli Steingríms Jónssonar biskups (14.8. 1969) og 150 ára afmæli
Jóns Arnasonar bókavarðar (17.8. 1969). Sýning 11.-25. ágúst.
Jóhann Sigurjónsson skáld. Hálfrar aldar ártíð (30.8. 1969). Sýning 30. ágúst-
16. október.
Eiginhandarrit ungra skálda og rithöfunda — í tilefni rithöfundaþings — einnig
minnzt aldarafmælis Guðmundar skálds Friðjónssonar á Sandi (24.10. 1969). Sýning
24. október-5. desember.
Myndir úr leiðangri Th. Stanleys til Orkneyja, Færeyja og íslands 1789. Sýning 10.
desember 1969-31. janúar 1970.