Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1970, Page 13
LANDSBÓKASAFNIÐ 1969
13
frá 1942, lét snemma á árinu af störfum vegna veikinda, og var Ástráður Björnsson
Hjartar bókbindari ráðinn í hans stað.
Vér þökkum Skafta Guðjónssyni vel unnin störf á liðnum árum.
AÐSÓKN Hér fer á eftir skýrsla um notkun bóka og handrita, um lesenda-
fjölda, útlán og tölu lántakenda:
Flokkur 1969
000 ............................................ 8.524 bindi
100 .............................................. 254 -
200 .............................................. 415 -
300 .............................................. 935 -
400 .............................................. 938 -
500 ............................................ 1.445 -
600 .............................................. 319 -
700 .............................................. 220 -
800 ............................................ 3.306 -
900 ............................................ 2.791
Samtals 18.147 bindi
Handrit 4,193
Lesendur 13.118
Útlán 1247 bindi
Lántakendur 225
NÝ LÖG UM Samþykkt voru á alþingi 25. apríl 1969 ný lög um Landsbóka-
LANDSBÓKASAFN safn íslands. Voru þau að mestu sniðin eftir lögunum frá 1949.
1 nýju lögunum er með ákvæðum, er felld voru inn í þau um Há-
skólabókasafn, opnuö leið til þeirrar sameiningar, sem stefnt er að, en ákvæðin miðuð
í svipinn við það ástand, sem ríkja mun, meðan hinar ytri aöstæður til sameiningar-
innar brestur.
Lögin eru birt í heilu lagi í þessari Árbók.
HEIMSÓKN Folke Sandgren, bókavörður við Konunglega bókasafnið í Stokk-
hólmi, heimsótti Landsbókasafn í júnímánuði og dvaldist hér
fjóra daga (17.-20. júní). Hann kynnti sér vandlega hinn sænska bókakost safnsins
og útvegaði síðar, þegar hann kom til Stokkhólms aftur, ýmis rit, er betra var að hafa
en án að vera.