Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1970, Qupperneq 14
14 LANDSBÓKASAFNIÐ 1969
Folke Sandgren annast að hálfu Konunglega bókasafnsins um bókaskipti þess við
Landsbókasafn.
Vér þökkum Folke Sandgren komuna og Konunglega bókasafninu í Stokkhólmi
ágæt samskipti á liðnum árum.
UM LEIGUHUSNÆÐI Landsbókasafn varð síðla sumars að rýma geymsluhúsnæði, er
það hafði á leigu í húsi Sölufélags Garðyrkjumanna við Reykja-
nesbraut 6. I staðinn tókst að útvega geymslurými í húsi Landssmiðjunnar við Sölv-
hólsgötu, og er hagræði að því, hve nærri það er Safnahúsinu.
BYGGING Mikill viðbúnaður var hafður á árinu vegna áætlunarinnar um
ÞJÓÐARBÓKHLÖÐU byggingu nýrrar þjóðarbókhlöðu við Birkimel. Við háskóla-
bókavörður áttum marga fundi, þar sem rætt var rækilega um
skipulag slíkrar byggingar, og sátu þeir bókaverðirnir Ólafur Pálmason úr Lands-
bókasafni og Einar Sigurðsson úr Háskólabókasafni þessa fundi með okkur. Þeir
sömdu síðan í framhaldi af þeim ýtarlega greinargerð um starfsemi þá, sem fyrir-
huguð er í liinu nýja safni, og var greinargerðin lögð til grundvallar í umræðum þeim,
er vér fjórir átLum í október við LfNESCO-sérfræðinga þá, er síðar getur í þessu yfir-
liti. Aður en til þeirra umræðna kom, sóttum við Björn Sigfússon fund Norræna
rannsóknarbókavarðasambandsins í Jyvaskylá í Finnlandi dagana 23.-25. september,
en á þeim fundi ræddu um 30 bókaverðir, arkitektar, byggingarráðsmenn og emb-
ættismenn úr ráðuneytum, er með byggingarmál fara, skipulag rannsóknarbókasafns-
bygginga-
Löngu eftir að för þessi var ráðin, barst okkur Birni boð um að sækja ársþing
Norska bókavaröafélagsins, er halda skyldi í Rauland á Þelamörk 13.-16. september,
og þekktumst við boðið.
I þessari ferð heiman og heim sættum við vitaskuld lagi og skoðuðum fjölda nýrra
bókasafnsbygginga, en förin var öðrum þræði farin í því skyni.
KOMA ERLENDRA í frétt frá Landsbókasafni 31. október 1969 sagði svo:
SERtRÆÐINCA Að ósk Landsbókasafns íslands og fyrir atbeina íslenzku
UNESCO-nefndarinnar komu liingaö til lands nýlega tveir sér-
fræðingar á vegum Menningar- og fræðslustofnunar Sameinuðu þjóðanna íslenzkum
safnamönnum lil halds og trausls í viðbúnaði þeim, er hafður hefur verið að undan-
förnu vegna áætlunar um þjóðbókasafnsbyggingu við Birkimel sunnan Hringbrautar
á landi því, er Reykjavíkurborg úthlutaði í fyrra undir slíka byggingu.
SérfræÖingar þessir, dr. Harald L. Tveterás, ríkisbókavörður Norðmanna, og Eng-
lendingurinn Edward J. Carter, sem er hvort tveggja arkitekt og bókavörður, dvöldust