Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1970, Síða 115
MAGNÚS MÁR LÁRUSSON
UPPDRÁTTUR AF VÍÐIMÝRAR-
OG GLAUMBÆJARSÓKNUM
UppdrÁttur sá, sem hér er greint frá og forstjóri Landhelgisgæzlunnar hefur nýlega
afhent Landsbókasafni til varðveizlu, er merktur uppi í hægra horni ÍBJ 1199 og 161.
Eftir talsverða leit hefur komið á daginn, að þetta er fært samkvæmt bréfadagbók
biskupsins yfir Islandi, og hefur tekizt að finna færsluna í bréfadagbók Geirs Vídalíns
Bps. C iv 7, 334^5, árið 1809. Samkvæmt færslu þar er ljóst, að tilefni uppdráttarins
er það, hvort endurbyggja eigi Víðimýrarkirkju eða ekki. Hún er þá bændakirkja, og
kirkjubóndi er Benedikt Halldórsson Vídalín, sem setur, að því er virðist, bú að Víði-
mýri 1806, en deyr um 1821 á 5. tugi ára. Hann var sonur Halldórs Vídalíns að Reyni-
stað (d. 1800), sonar Bjarna Halldórssonar sýslumanns að Þingeyrum. Halldór nefndi
sig Vídalín eftir móðurföður sínum, Páli lögmanni Vídabn. Benedikt, sonur hans, var
kvæntur dóttur Jóns biskups Teitssonar, og hefur hann, að því er ég hygg, eignazt
Víðimýri með því kvonfangi. Mál nr. 1199 er innkomið 15. marz 1809, rétt eins og
mál nr. 1198. Mál nr. 1198 er erindi síra Péturs Péturssonar prófasts í Miklabæ „viðv.
Víðimýrarkirkju aftöku. Viðleggur eina P. M. frá stúdent B. Vídalín til hans, hvort
hann eigi að fyrirtaka kirkjubyggingu eður ei, en prófastur er þeirrar meiningar, að
Víðimýrarkirkja eigi að uppbyggjast, en ekki aftakast, og færir margt vigtugt til síns
máls í því falli.“
Svar biskups er ritað 6. maí 1809: „Spáð, að Víðimýrarkirkja verði vægðarlaust
aftekin, þó bíði maður fyrst um sinn.“ I málinu nr. 1199 kemur fram, að prófastur-
inn „viðleggur kort viðv. Víðimýrar- og Glaumbæjarsóknaástandi, er liann biður að
sér mætti við tækifæri remitterast ásamt P. M. stúdents B. Vídalíns til hans anfært sub.
nr. 1198.“ Svar biskups við því er einnig 6. maí: „Kortið og bréf stúdents Benedikts
Vídalíns til prófasts remitterað.“
Bréf Benedikts Vídalíns og prófasts virðast vera glötuð. í bögglinum Bps. C v 66
finnast engin prófastsbréf, er lúta að þessu. Kópíubækur prófasts eru ekki heldur til
frá þessum tíma, en kirkjustóll Víðimýrarkirkju sýnir, að kirkjan má heita fallin um
1809 og þar að auki svo lítil, að rúmi engan veginn söfnuðinn. Af kirkjustólnum er
ljóst, að endurbygging kirkjunnar hefjist 1810 samkvæmt kirkj ureikningi. Og hinn
3. október 1813 er prófastur staddur að Víðimýri og vísiterar nýbyggða kirkju þar.