Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1970, Page 121
ÚR FÓRUM BENEDIKTS FRÁ AUÐNUM
121
„En Jóni Vídalín (umboðsmanni Kaupfélags Þingeyinga) sýndi jeg þær og varð
hann ymist reiður eða hann hló að „arrogansen“ í þjer“.
Ennfremur 10/8 1899 um sama:
„Líklega hafa athugasemdir okkar eitthvað krassað eftir brjefinu að dæma“.
Og ennfremur:
„Nú er jeg búinn að fá lán hjá landsbankanum fyrir þig upp í % Þverár . . . . er
fágætt að svo mikið fáist nú á dögum. En sjera Eiríkur (Briem, þá gæzlustj. Lbk.)
getur ekki orða bundizt um skriftina þína hve hún sje falleg og góð, og Tr(yggvi Gunn-
arsscn) segir, að hún sje meira að segja hættul. því maður freisdst til að lána meira
út á skjöl, sem sje svona skrifuð!“
Sami 10/1 1900:
(Lýsir ýmsu sem hefur farið úrskeiðis; á að halda í kaupfélagsskapinn eða hætta,
hugleiðingarnar eru honum flestar til varnar.)
„í ofanálag sá óbeini hagnaður að fjelagsskapnum eða öllu heldur: hið óbeina tjón
við að missa hann; öll sú menningarniðurlæging sem við hröpum í við það að missa
hann (kaupfélagsskapinn). Hvernig verður okkar fjelagslíf, þegar kaupfjelagsskapur-
inn er hlásinn burt? Hvað kemur í staðinn? - Rósemi fyrir mig og þig; hæglát, svelt-
andi elli — en fyrir okkar lilla menningarnýgræðing?
Og enn 22/1 1900:
„ . . . jeg ætla mjer að spara ekkert til að halda kaupfjelagsskapnum áfram“.
Sami 4/4 1905:
„Hlífðu mjer ekki við því sem að þínu skaplyndi amar. Þú ert stundum óþarflega
þögull við mig, jeg skal einhvern tíma leysa ofan af ef jeg hefi tíma, - og jafnvel okkar
samvinna er elcki eins auðveld og ætti að vera nú orðið.“
Sigurður Jónsson bóndi í Yztafelli (síðar ráðherra) 18/12 1895:
„Þú hefur svo gott lag á því að halda mjer vakandi og pússa mig til að segja eitt-
hvað og þú heldur mjer eigi sízt við af ykkur fjelögum. Jeg held það sje mest fyrir það
að þú átt svo hægt með að verða sjálfur „begejstret“. . . . það er mjer verul(eg) hress-
ing að sjá frá þjer línu eður heyra þig, þó ekki væri nema bölva, því maður getur gjört
það með alúð, eins og hvað annað.“
Ennfremur 5/4 1903:
„Þjer finnst einhver ömurleika undirstraumur í mínu brjefi . . . Það bólar æ minna
á principum og um „Begej string“ er óvíða að tala . . . . Veit eg það vel, að þú starfar
alltaf að útbreiðslu á okkar evangelium . . . .“
Ennfremur 13/12 1910:
(Hefur verið að skrifa grein til varnar kaupfélögunum)
„Stundum finnst mjer allt þetta veigalaust hjá mjer og fyrir daufum eyrum talað,