Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1970, Blaðsíða 123
ÚR FÓRUM BENEDIKTS FRÁ AUÐNUM 123
að hugsa um þjóðina í heild; þú átt að vinna eitthvað fyrir hana og taka peninga
fyrir handa konu og börnum . ..
Þorgils gjallandi 17/12 1892:
„ . . . . Bréfið er orðið langt; ég hafði þörf til að tala við einhvern sem ekki kýmdi
að mér fyrir þó ég léti örla á hégóma mínum og sem ekki flenkti upp skjáina þó hann
sæi, að mér væri meinlaust við sjálfan mig; - og svo bar ég niður á þér, í allri ein-
lægni að segja.“
Sami 19/9 1893:
„Mér væri þökk á, ef þú vildir skrifa mér seðla svona við og (við) þegar þú hefur
tómstundir til; ég hef gaman af að fá bréf stöku sinnum frá þeim sem líta á ýmislegt
svipað og ég sjálfur.
Mál fyrir mig að hætta því ég hef heyaÖ mig heimskan í sumar.“
Sami 19/2 1900:
„Mannúð og miÖlun ganga um þessar mundir rnjög úr hófi; en hatriö í bréfi þínu
er öfgakent. Þú ert barn þessa tíma einsog ég, og þó við bölvum feiknin öll aÖhyllumst
við samt mannúðina og ánetj um okkur í miðlunarnetinu. Ég efast ekki um að þú getir
komið með mörg dæmi af sjálfum mér þar sem ég hefi „slegið af“ til að þóknast mann-
úðinni.....Ég get ekki veriö með í pólitíkinni - og það er þér kunnugt - af því ég
er óþolinmóöur og heimtufrekur. Vil berjast fyrir frestandi neitunarvaldi; mér hitnar
ekki við öllu minna; en ég hefi staöið einsog framhleypinn glópur gagnvart hyggnu,
stjórnkænu görponum, bæði heima í sveit og niður í dölum .... Sömu kjör hafa orðið
fyrir mér í kirkju- og prestamálum; ég heimta of mikið og einangrast .... Ég hata
prestana sem stétt. Ofríki þeirra sem leitast við að kúga lítilmagnann, og ennþá margt
fleira ....
Það ætti best við, að þú og ég hertum hvor annan upp, til að rífa af okkur stóryröin.
Ennþá einusinni, hafðu þökk fyrir bréfið vinur, karli þótti vænt um það, honum Jóni
Stefánssyni.“
Sami 13/3 1900:
„Mér er sama þó þú andskotir mér út, djöflir mér undir allar neðstu hellur helvítis,
bara ef þú skrifar mér. „Bænheyrðu mig Benedikt og gerðu það strax, ekki er þegar
nema þegar sé“ “......
Sami 27/1 1905:
(Skrifar líkt og Guðmundur Friðjónsson um Benedikt og skrifstofustörfin.)
„Verið þið nú allir til altaris . . . Þið getið hvort sem er aldrei hætt að dekra við
prestana og trauðla lifað á fundi nema undir handarjaðri eins þeirra . . . .“
Ennfremur 4/10 1905:
„ . . .. Og þökk fyrir góða vináttu; ég hefi aldrei á lífsleiðinni fundið jafnvel og nú
hvers virði hún er . . ..“