Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1970, Qupperneq 188
188
FRÁ HALLGRÍMISCHEVING
við að trúa því, en bráðum sá eg á yðar eigin bréfi, að þér voruð ekki orðnir andlega
dauðir — eg leyfi mér að kalla það svo - og líka fannst mér viðureign yðar við Hansen
skólaráðiö lýsa meira þreki en andlega dauður maður mundi hafa sýnt. Loks fannst
mér það liggja í augum uppi, að þér munuð ekki þiggja kennaraembætti í íslenzku
við Kaupmannahafnar háskóla, þó yöur stæði það til boða, því síður að fyrra bragði
óska að fá það, ef þér hefðuð fundið yður eins á yður kominn og þér segið. Ef þér
verðið ekki lakar á yður komnir með andlega þróttleysið, þegar yður berast þessar
línur í hendur en þegar þér skrifuðuð mér, er yður óhætt að trúa mér til þess, að þér
eruð ekki - sem belur fer — orðnir andlega afllausir og fjörlausir, og að yðar eigin
ímyndan sé ekki að trúa, ef hún segir yður hið gagnstæða. Eg bæði vona og óska að
ímyndan þessari takist ekki að hamla yður frá að beita þeim krafti, sem í yður er, við
þau störf, sem þér hafiö á hendi og munduð takast á hendur, ef hún væri ekki að telja
það úr. Þó eg sé ekki fær um að leggja yður ráð, knýr mig samt einhver innvortis hvöt
til að vara yður við því að segja það ekki svo hátt, „að þér séuð andlega fjörlausir og
afllausir“, að Kaupmannahafnar menn heyri, meðan þér hafið hug á því að verða
gjörðir að háskólakennara í íslenzku, því trauðla mundi þeim manni verða veitt það
embætti, sem þannig væri á sig kominn.
Nóg um þetta efni, nú til annars.
Eg verð að biðja yður að reiðast mér ekki þó mér verði ef til vill þráspurt um sama
hlutinn. Eg held eg hafi oftar en einu sinni spurt yður í bréfum mínum, hvað liði hinum
íslenzku orðbókum þeirra Cleasby og Ungers, og samt langar mig enn til að spyrja að
hinu sama. Reklor Sveinbjörn Egilsson kvað hafa selt Rafni orðbók sína yfir forna
skáldamálið okkar, og vonuðust menn hér eftir, að Rafn mundi hið allra fyrsta byrja
á að láta prenta liana, en um það heyrist hér þó ekkert. Hvað þessu líður mun yður
vera kunnugra en oss hérna. - Með þessum seöli sendi eg yður 1 rdb, sem seinna hluta
míns árlega tillags til Det oldnordiske Literatur Samfund, sem og 80 skildinga fyrir
Fagurskinnu, sem þér senduð mér, og verð eg að biðja yÖur að vitja lítilræðis þessa
hjá alþingismanni herra Jóni Sigurðarsyni.
Fyrirgefið fráganginn á seðli þessum.
Yðar elskandi
H. Scheving
Reykjavík, 7. ágúst 1848
Hæstvirti elskulegi Lektor!
Á morgun heyrist, að kaupmaður Petersen ætli að halda héðan. Með honum fer
stúdent Karl Andersen, sem eg hefi í hyggju að biðja fyrir þennan miða, og á honum
að fylgja 1 rbd, sem er fyrri hluti míns þessa árs tillags fyrir það, sem komið hefir frá
Fornritafélaginu síðan í haust er var, nefnilega Bjarnar sögu Hítdælakappa og Vopn-
firðingasögu með nokkrum þáltum, sem þér seuduð mér með hréfi dagsettu 5. apríl þ.á.
Með síðara hréfi yðar, dagsettu 1. maí, senduð þér mér Alexanders mikla sögu, útgefna