Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1970, Page 210
LÖG UM LANDSBÓKASAFN ÍSLANDS
Samþykkt á Alþingi 25. apríl 1969.
1. gr.
Landsbókasafnið er þjóðbókasafn Islands.
2. gr.
Hlutverk Landsbókasafns er:
1. að annast söfnun og varðveizlu íslenzkra rita og rita, er varða ísland eða íslenzk
efni, fornra og nýrra, prentaðra og óprentaðra,
2. að afla erlendra rita í öllum greinum vísinda, bókmennta, lista, tækni og samtíðar-
málefna,
3. að annast rannsóknir í íslenzkri bókfræði,
4. að vinna að kynningu íslenzkra bókmennta og íslenzkrar menningar innan lands
og utan,
5. að leiðbeina þeim, er til safnsins leita, og örva til bóklestrar og fræðaiðkana.
3. gr.
Landsbókasafn skal þaulsafna prentuðu efni íslenzku eða því, sem ísland og íslenzk
málefni varðar, á hverri tungu sem er. Sé enginn kostur frumrita, skulu fengnar af
þeim filmur eða annars konar myndir, eftir því sem auðið er.
Landsbókasafn skal varðveita ónotað eitt eintak af sem flestu íslenzku prentuðu
efni, og skal þeim eintökum fengin sérstaklega örugg geymsla.
4. gr.
Landsbókasafn varðveitir handritasöfn þau, er það hefur viðað að sér frá öndverðu,
en skal jafnframt vinna að söfnun islenzkra handrita og erlendra handrita, er varða
íslenzk efni, og greiða fyrir rannsókn þeirra og útgáfu.
Það skal vinna að öflun mynda af íslenzkum handritum, ef frumrit eru ekki fáanleg.
Landsbókasafnið og Handritastofnun íslands skulu hafa samráð um þetta síðasta
atriði, skipta þar með sér verkum, svo að ekki komi til tvíverknaðar.
5. gr.
Landsbókasafn skal halda uppi rannsóknum í íslenzkri bókfræði og gefa út skrár