Vísbending - 18.12.2004, Blaðsíða 13
Þú útskrifaðist af tungumálabraut í menntaskóla en lagðir svo
fyrir þig hagfræði. Hvers konar tungumál er hagfræði og hvernig
hefur hagfræðingum gengið að útskýra og koma hugmyndum
sínum á framfæri á íslandi?
Ég fór í máladeild til þess að sleppa við efnafræði en þótti reyndar
stærðffæði skemmtileg. Svo fór ég til útlanda eftir stúdentspróf til þess
að sleppa við bókfærslu. Ég fór svo í hagfræði frekar en tungumál til
þess að verða ekki kennari en það fór nú á annan veg. En þegar maður
á val milli tveggja kosta er oft gott að velja báða - ef hægt er. Rey ndar
átti doktorsritgerð mín svo eftir að fjalla um það að leggja ekki öll egg
í sömu körfu í framleiðslu eða ráðstöfun fjár. I gmnnprófi mínu hafði
ég jafnmikið í ensku, tölfræði og hagfræði. Ég þurfti að veija talsvert
miklum tíma í stærðfræðina fyrsta árið í háskóla f Stokkhólmi. I nárni
mínu í Svíþjóð var hagfræðin á ensku, þýsku og sænsku og nokkuð af
hagrannsóknum á frönsku. Að læra ensku og hagfræði saman var álíka
fátítt þá eins og að taka hagfræði og kínversku í dag.
Reyndar varð enskunámið til þess að ég fékk tvö tungumál fyrir eitt.
Hljóðfræðin hjálpaði mér í sænskunni og enskunni samtímis, svo og
þýðingar af öðru tungumálinu á hitt á vfxl. Þetta hefur komið mér að
ómældu gagni í skrifum og samskiptum við fólk.
Hagfræðin hefur komið sér upp sérstökum orðaforða. Þetta er
ekki af merkilegheitum eða fordild en fremur til þess að sækjast eftir
nákvæmni í skilgreiningum og orðavali.
Hagfræðin hefur orðið allstærðfræðileg á köflum og styðst því mikið
við táknmál.
Mér finnst falleg fonnúla eða sönnun í hagfræði eins og gott mál-
verk eða áhrifamikið tónverk. Þetta vekur unun og festist í minni.
Þú hefur setið í ýmsum stjórnum einkafyrirtækja. Hver er
reynsla þín af stjórnum íslcnskra fyrirtækja og hvernig eru
þær í stakk búnar til þess að fylgjast með stjórnendum og
starfsemi fyrirtækja? Hvað hefur hagfræðingur fram að færa
fyrir stjórnir íslenskra einkafyrirtækja?
Ég hef bæði lært mikið af því og kynnst því hvemig hugvits-
samir menn og samstilltir hópar geta gert kraftaverk í einkafyrir-
tækjum en ég hef líka séð hvernig togstreita og skapgerðarbrestir
geta spillt góðunt árangri. Það er eilíft umræðuefni hvort óháðir
stjórnarmenn geri eitthvert gagn. Það fer eflaust eftir mönnum en
ég veit dæmi þess að það hefur skipt sköpum. Það hefur komið
mér skemmtilega á óvart hve persónulegt traust milli manna auð-
veldar ákvarðanatöku og ræður oft úrslitum um niðurstöður.
Er ekki dásamlegt að enn sé unnt að handsala ntilljarða?
Hver ættu að vera helstu viðfangsefni hagstjórnar á íslandi
næstu tíu árin og hvaða árangri er hægt að vonast eftir?
Það þarf að halda áfram að markaðsvæða þjóðfélagið, efla sam-
keppni og frumkvæði. Stefnufesta og stöðugleiki eru lykilatriði.
Það hefur sýnt sig að erfitt er að gefa nákvæma forskrift að því
hvaða atvinnugreinar eigi að leggja áherslu á. Þar verður arðsenti
að ráða ferð. Ég gæti trúað að útrás íslenskra fyrirtækja haldi
áfram og það í enn fleiri greinum og jafnframt verði meira af
verðmætasköpuninni erlendis. Eins og ég lét einhvern tíma hafa
eftir mér er fsland of lítið fyrir heilabú íslendinga. I
W W W
Mmmtmtamúmaá
s p ke f. i s
SiSKSif'.wawKíSyy.'íi1;®',:!'
Alhliða fjármálaþjónusta
fyrir þig og þína
sm
1S £ Tjarnargata 12 Grundarvegur 23 Sunnubraut 4 Víkurbraut 62 Vogar |
230 Keflavík 260 Njarðvík 250 Garði 240 Grindavík Iðndal 2 8
• V—- / Sími 421 6600 Sími 421 6680 Sími 422 7100 Sími 426 9000 Sírni 424-6400
nn í Kcflavík Fax 421 5899 Fax 4215833 Fax 422 7931 Fax 426 8811 Fax 424-6401