Vísbending - 18.12.2004, Síða 18
BALDUR vORHAUSSOM
í Grikklandi hinu forna stóð orðið mythos fyrir munnlega tjáningu, þ.e. orð, ræðu eða sögu sem sögð var í
mæltu máli. Smám saman fór þó orðið að eiga við um skáldlega lýsingu á atburðum. Orðið hefur afbakast
svo mikið að nú tengist orðið „mýta“ ofvöxnu ímyndunarafli eða einhverju sem fólk trúir að sé satt þó að
enginn fótur sé fyrir því. I nútímamáli eru mýtur einhvers konar „sannleikur“ sem er einungis byggður á
trú um að það sé „sannleikur“. Vísindahyggjan hefur að mörgu Ieyti orðið til þess að afsanna slíkar mýtur
með rannsóknum. En jafnvel í hinum lærðustu vísindum verða til mýtur og oft er tilvist þeirra fólgin í
„vísindalegum“ rökstuðningi sem er lítið annað en skáldskapur þegar betur er að gáð. Sumar mýtur eru
skemmtilegar, eins og sú að Newton hati uppgötvað þyngdaraflið þegar hann fékk epli í hausinn, og lítil
ástæða til þess að afsanna þær, en aðrar mýtur eru þess eðlis að þær standa í vegi fyrir framtörum, eins
og þegar menn héldu því fram að jörðin væri flöt og sigling út fyrir sjóndeildarhringinn væri þess vegna
sjálfsmorðsleiðangur. Trúgirni manna gerir það að verkum að sumar mýtur fá lifað um langa tíð og geta
jafnvel orðið mönnum leiðarljós sem leitt getur þá á villigötur. Það er þess vegna mikilvægt að reyna að
kveða niður mýtur, ekki hvað síst í íslenskum veruleika þar sem álfar og tröll ganga á meðal okkar. Vís-
bending fékk sex sérfræðinga til þess að nefna nokkrar mýtur á sínu sérsviði og útskýra af hverju það eru
mýtur. Afraksturinn er skemmtilegur.
1. Fjórtlokkurinn er dauóur.
Revndin: Það má færa rök fyrir því að fjórflokkurinn
lifi góðu lífi, þ.e. að Samfylkingin sé jafnaðarmanna-
flokkur Islands eins og Alþýðuflokkurinn var og að
Vinstri-hreyfingin grænt framboð sé sósíalískur vinstri-
flokkur og sá flokkur sem er lengst til vinstri á vinstri-
hægri kvarðanum eins og Alþýðubandalagðið var á
sínum tíma.
2. Það er enginn munur á stefnu repúblikana og
demókratii í Bandaríkjnum, þ.e. enginn niunur er
á stefnu Bush, forseta Bandaríkjanna, og Kerrys,
fyrrverandi forsetaframbjóðanda demókrata.
Revndin: Það er mikill munur á afstöðu Bush og Kerrys
í fjölda málaflokka, t.d. í skattamálum, aðkomu ríkis-
ins að heilbrigðismálum og umhverfismálum, afstöðu
til dauðarefsinga og byssueignar og afstöðu til réttinda
kvenna og samkynhneigðra.
3. Kjósendur láta glepjast af auglýsingatlóði stjórn-
málatlokka og kjósa á grundvelli áróðursauglýsinga
en ekki á grundvelli þeirra málefna sem tlokkarnir
standa fyrir.
Revndin: Kosningarannsóknir sýna að það er fylgni
á milli afstöðu kjósenda til einstakra málefna og þess
hvaða flokk þeir kjósa.
4. Hugtökin vinstri og hægri eru úrelt í hugarheimi
kjósenda.
Revndin: Kosningarannsóknir sýna að kjósendur eigi
nokkuð auðvelt með að staðsetja sig á vinstri-hægri
kvarða stjómmálanna.
5. Smáríkjum gengur verr efnahagslega og pólitískt
en stærri ríkjum.
Revndin: Smærri ríkjum gengur mun betur efnahags-
lega en þeim stærri og það er ekki hægt að greina meiri
pólitískan óstöðugleika í smáríkjum en í stærri ríkjum.
6. Langflestir kjósendur Framsóknarflokksins búa
á landsbyggðinni.
Revndin: Um helmingur kjósenda Framsóknarflokks-
ins koma úr gömlu kjördæmunum Reykjavík og Reykja-
nesi.
7. íhaldsmenn í Evrópu hafa meiri efasemdir um
ágæti Iivrópusamrunans en vinstrimenn.
Revndin: Ihaldsmenn áttu stóran þátt í því að koma
Evrópusamrunanum á skrið effir seinni heimsstyijöld-
ina og íhaldsmenn á hinum Norðurlöndunum áttu frum-
kvæði að þátttöku landanna í samrunaþróun Evrópu.
8. Það að vera þjóðernissinni og styðja samruna-
þróun Evrópu fer ekki saman.
Revndin: Margir Skotar og Katalóníubúar eru miklir
þjóðemissinnar og vilja sjálfstæði en tala eindregið fyrir
aðild Skotlands og Katalóníu að Evrópusambandinu.
9. Iiftir síðustu kjördæmabreytingu er misvægi
atkvæða milli landsbyggðar og höfuðborgarsvæðis-
ins svipað og gerist víða erlendis.
Revndin: Misvægi atkvæða hér á landi er enn eitt það
mesta sem gerist í ríkjum Vestur-Evrópu.
10. Norðurlöndin standa ávallt sanian innan Evr-
ópusambandsins.
Revndin: Norðurlöndin hafa ólíkra hagsmuna að gæta
og hvert og eitt þeirra vinnur fyrst og fremst á gmnd-
velli sinna eigin hagsmuna innan sambandsins. 0
- 18-