Vísbending - 18.12.2004, Síða 27
skyldna. Það er ólíklegt að þjóðin láti sér
það lynda þegar hún áttar sig.
Benedikt Jóhannesson
(Kvótinn á færri hendur).
Þarmig hefur hlutfall skráðra sjávarfyrir-
tœkja, eins og Kauphöllin skilgreinir þau,
lœkkað úr um 40% þegar það var hœst árið
1997íum6%áþessuári. Meðalstœrð sjávar-
útvegsfyrirtœkjanita hefur einnig aukist lítið
í samanburði við meðaltal allra fyrirtœkja í
Kauphöllinni.
Þórður Friðjónsson
(Erlendar fjárfestingar í sjávarútvegi).
Þegar verð á markaði hœkkar um 163% á
rétt rúmu ári á sama tíma og verðhœkkanir
á öðrum mörkuðum liafa verið mun rólegri
erástœðafyrirfjárfesta að velta þvífyrir sér
hvort þeir séu hluti afbrandarainum eður ei.
Eyþór ívar Jónsson (Islenskt eldgos).
• Samráð og siðferði
Hann lœðist stundum að manni sá grunurað
sumir séu alsœlir með markaðinn á meðan
þeir hafa einokunarstöðu en finni honum
allt tilforáttu þegar þeir verða undir í sam-
keppninni. Þess vegna er ekki skrýtið að
umrœða um einokun og samkeppni virðist
oft þversagnarkennd.
Eyþór ívar Jónsson
(Sötrað af sama grautnum).
Kostnaðar-/ábatagreining er mjög viðkvœm
frœðigrein og auðvelt er að belgja út stœrðir
í allar áttir ef varúðar er ekki gœtt. Mikil-
vœgt er því að þeir sem beita slíkrifrœði geri
það með varfœrnislegum hœtti til þess að
trúverðugleiki niðurstaðna haldist. Einnig
er mikilvcegt eins og gildir almennt um allar
rannsóknir að hlutleysis sé gœtt í hvívetna
og ekki sé látið undan þrýstingi kostunarað-
ila, óháð því hversu mikilvasgt og gott mál-
efni þeirra er.
Björgvin Sighvatsson (Sama tóbakið?).
Lítill vafi leikur hins vegar á því að flestir
frœðimerm landsins töldu þama um dœmi-
gert „þegjandi samráð“ að rœða enda
aðstæður áfákeppnismarkaði olíufélaganna
kjömarfyrir sh'kt samráð. Það er liins vegar
ekki ólöglegt samráð heldur klassískt dæmi
um það hvernig fyrirtœki á fákeppnismark-
aði starfa.
Eyþór Ivar Jónsson
(Oupplýstir stjómarmenn).
Jafnvel þó að niðurstaðan sé hin sama og
af þegjandi samkomulagi er samt um tvennt
ólíkt að rœða. Antiað er að taka varfœmis-
lega þátt í leiknum en hitt er að semja um
niðurstöðu hans og leika hann undir fölsku
yfirskini, sem er bœði siðlaust og ólöglegt.
Eyþór Ivar Jónsson (Dýrt samráð).
• Fjármálamarkaðurinn
Islenskur fjármálamarkaður býr við þá
sérstöðu hversu stór hluti lánakerfisins er
ennþá í höndum ríkisins. Þar gín hinn ríkis-
rekni Ibúðalánasjóður yfir markaði einstak-
lingslána. Hlutur lífeyrissjóða vekur einnig
atliygli, en í nágrannalöndunum stunda líf-
eyrissjóðir almennt ekki lánastarfsemi. Ef
Ibúðalánasjóður, LIN og lífeyrissjóðir eru
teknir saman er hlutdeild þeirra um 70% á
þessum markaði.
Guðjón Rúnarsson
(Rekstrarkostnaður íslenskra banka).
/ Ijósi þessa erekki ólíklegtað hluturerlendra
lána vaxi á næstu missemm, enda er Ijóst að
íslenskir lántakendur ættu að geta hagnast
verulega með því að taka erlend fremur
en innlend húsnœðislán. Af verðtryggðum
lánum jafhgilda 4,2% vextir 7,6% vöxtum af
óverðtryggðum lánum þegar verðbólga er
3,1%. Samanborið við erlend myntkörfulán
með 2,9% vöxtum er innlenda lánið meira
en tvöfalt dýrara en það erlenda.
I’orstcinn Siglaugsson
(Ráðdeild borgar sig).
IBjankakeifið á Islandi [er] helmingi dýr-
ara en á hinum Norðurlöndunum, mælt sem
hlutfall rekstrarkostnaðar af VLF. A hinum
Norðurlöndunum nemur rekstrarkostnaður
viðskiptabanka og sparisjóða árin 1999-
2001 að meðaltali um 2% af VLF en liér á
landi er rekstrarkostnaðurinn rúmlega 4%
afVLF. Hér munar gífurlega miklu þar sem
2 prósent afVLF nema nú um 15 ma.kr.
Olatúr Klemensson
(Er það óhagkvæmni smæðarinnar?).
• Mannauðurinn
Islensk fyrirtæki þuifa að auka enn frekar
áherslu á menntun og þjálfun starfsfólks til
að standast samanburð við leiðandi fyrir-
tæki erlendis. Það á ekki síst við um fyrir-
tœki í landbúnaði, sjávarútvegi og iðnaði og
einkanlega á það við um staifsfólk með litla
menntun.
Ingi Rúnar Eðvarösson
(Starfsmenntun í íslenskum fyrirtækjum).
Fyrirtæki verða einnig að læra. Þau gera
það í gegnum staifsmenn sína og menningu
fyrirtœkisins. Flest fyrirtæki virðast hins
vegar eiga í sömu etfiðleikum og mann-
fólkið, þ.e. að vera ístöðugri upprijjunfrekar
en uppbyggingu og lœra með aðferðum sem
bera engan árangur. Þau eru stundum eins
og naggrísinn í lilaupalijólinu, alltaf á fullri
ferð en komast ekkert áfram.
Eyþór Ivar Jónsson (Leikur að læra).
Þjálfarar (þróttaliða hafafyrir margt löngu
áttað sig á að lið þeirra verður aldrei
miklu sterkara en veikasti hlekkur þess.
... Hið sama liafa framleiðslustjórar upp-
göt\>að, að það er í raun flöskuhálsinn sem
rœður afkastagetu kerfisins. Keðjuverkun af
völdum veikasta hlekksins verður til þess að
allt kerfið fer að hegða sér í samræmi við
hann. Besta leiðin til að bæta keifið er þess
vegna að styrkja veikasta hlekkinn.
Eyþór ívar Jónsson (Keðjuverkun). flj
Leiðandi í matar- og
drykkjarsjálfsölum fyrír vinnustaði.
Erum við hjá þér?
selecta III
Selecta ehf. • Sfmi 5 85 85 85 • www.selecta.is