Vísbending


Vísbending - 18.12.2004, Síða 30

Vísbending - 18.12.2004, Síða 30
VISBENDING Fyrsta stjórn Hf. Eimskipafélags íslands. Höfðingleg bankastjóm Sem fyrr segir laut Landsbankinn stjóm bankastjóra undir eftirliti gæslustjóra, sem deildir Alþingis kusu. Bankastjórinn var skipaður af landshöfðingja. Árið 1910 voru bankastjórar bankans orðnir tveir og þeim fjölgaði enn árið 1918, þegar störf gæslustjóra voru lögð niður. Þegar íslandsbanki var stofnaður árið 1904 var yfirstjóm bankans hjá tveim aðilum, sjö manna fulltrúaráði, þremur kosnum af Alþingi og þremur kosnum af hluthöfum en ráðherra var sjálfkjörinn formaður. I upphafi var bankastjórinn danskur og tveir íslenskir en annar þeirra lést nokkrum vikum eftir að bankinn hóf starfsemi. Öruggt má telja að þess háttar fulltrúaráð hefur ekki verið mjög virkt miðað við sam- göngur þess tíma. Bankastjóramir vom því eigin herrar í störfum sínum, hugsanlega hafa þeir þó orðið að fara að vilja formanns full- trúaráðsins, ráðherrans, því að bankinn var seðlabanki landsins í upp- hafi starfsferils síns. Það er fyrst með Landsbankalögunum frá 1927 að til verður 15 manna Landsbankanefnd, sem Alþingi kaus, en nefndin kaus síðan ljóra menn í bankaráð bankans og ríkisstjómin skipaði formann til viðbótar. Landsbankanefnd starfaði allt til ársins 1957. Allan feril Landsbankans í eigu ríkissjóðs vom það bankastjóramir sem fóm með stjórn bankans. Bankaráðið réð bankastjóra bankans en að pólitískri forskrift. Einstaka bankaráðsmaður leit á starf sitt sem fyrirgreiðsluembætti til að tryggja flokksmönnum sínum aðgang að lánum rneð niðurgreiddum vöxtum fyrir tíma verðtryggingar. Stjórn Búnaðarbankans laut svipuðum lögmálum og stjómir ann- arra íslenskra banka í eigu ríkissjóðs. Bankaráð bankans var kosið af Alþingi og hlutverk þess var eftirlitshlutverk og að ráða bankastjóra til að stjóma daglegum rekstri. 1 Búnaðarbankanum voru bankastjór- amir í raun sterkari en hinir pólitísku flokkar, því að bankastjóramir eða ekkjur þeina réðu eftirmennina. * I faðmi stjómvalda Bankamir vom í upphafi framlenging á armi stjómsýslu landsins. Bankastjórar vom í upphaft skipaðir af landshöfðingja og síðar ráð- herra, þar til bankaráð fóru að hafa milligöngu um ráðningar banka- stjóra. Fyrstu útibú bankanna á landsbyggðinni vom á þeim stöðum þar sem annar armur stjómsýslunnar, sýslumenn, höfðu aðsetur. Þrístjómarráð bankanna áttu að tryggja pólitískt jafnvægi í stjóm bankanna. Alþýðuflokkur, Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur tilnefndu bankastjórana en Sósíalistaflokkur og síðar Alþýðubanda- lag var á hliðarlínu til að tryggja flokkslega hagsmuni, sem ekki vom

x

Vísbending

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.