Frjáls verslun - 01.12.1962, Qupperneq 26
TOLLVÖRUGEYMSLAN — FYRSTA ÁFANGA LOKIÐ
Tollvörugeymslan — efns og hún lítur út fullbyggð
Tollvörugeymslan við Héðinsgötu verður byggð
í þremur áföngum, en nú má heita, að smíði fyrsta
áfangans sé lokið og verður hann tekinn í notkun
á næstunni.
I júlí eð leið voru verksamningar undirritaðir,
og tók Byggingariðjan að sér að bvggja húsið úr
strengjasteypu, hóf verkið þegar í stað.
Fyrsti áfanginn er 102 metrar á lcngd og 24 á
breidd, en fullbyggð verður Tollvörugeymslan 8200
fermetrar. Útigeymslusvæði umlukt byggingarálm-
unum verður 11.000 fermetrar að stærð.
Teikningu Tollvörugeymslunnar gerði Bárðu
Daníelsson arkitekt, yfirsmiður fyrsta áfangans hef-
ur verið Kristinn Sveinsson. Stjórnarformaður Toll-
vörugeymslunnar hf. er Albert Guðmundsson stór-
kaupmaður.
um miskilningi byggt. í þessu
felst svo mikil mismunun við út-
breiðslu prentaðs máls og helzt
því líkast, að sett sé til höfuðs
bókaútgáfu á íslandi. Ástandið í
þessu efni var orðið mjög slæmt,
en fyrir tveimur árum fékkst lítils-
háttar lagfæring, þegar felldur var
niður einn liður af tollum eftir
tillögu stjórnskipaðrar nefndar, en
það er ekki nærri fullnægjandi til
að afnema ranglætið. Nú hefur
verið felldur niður tollur á efni
til íslenzks iðnaðar, sem og sjálf-
sagt er, en ekki hefur enn fengizt
fullnaðarlagfæring á aðstöðu við
bókagerð á íslandi með því að
fella niður hina háu tolla á bóka-
pappír. Bað er mikið í húfi hjá
bókaútgefendum þennan stutta
tíma árs, sem bækur seljast aðal-
lega. í því sambandi vildi ég minn-
ast á það, að æskilegt væri að
bókafélögin, sem gefa út fvrir fast-
an kaupendahóp, gerðu réttara í
því að láta sér nægja aðra tíma
árs en setja ekki bækur á mark-
aðinn rétt fyrir jólin þegar mest
af ársmagninu frá öðrum útgef-
endum kemur út á fáum vikum.
Þannig fórust Gunnari Einars-
syni orð, en hann er og hefur ver-
ið undanfarin ár formaður Bók-
salafélags íslands. Gunnar hefur
látið fleiri málefni til sín taka.
Hann hefur frá upphafi verið í
stjórn Bálfarafélags íslands. Einn
af helztu áhugamönnum Reyk-
víkingafélagsins hefur hann og
verið frá byrjun. Lengi var hann
formaður Hins íslenzka prentara-
félags og formaður Félags ísl.
prentsmiðjueigenda um mörg ár,
og í stjórn Vinnuveitendafélags ís-
lands. Hann var meðal stofnenda
Prentsmiðjunnar Aeta og Hamp-
iðjunnar og í stjórn hennar um
tíma, í stjórn Almennra trygginga
hf. frá stofnun, og sat 8 ár í banka-
ráði Búnaðarbankans.
Kvæntur er Gunnar Einarsson
Jónínu Jónsdóttur bónda að Fells-
öxl í Borgarfirði, Símonarsonar,
bróður Bjarna próf. á Brjánslæk.
26
FRJÁLS VERZLUN