Frjáls verslun - 01.04.1973, Page 16
STORBROTIÐ ÚTSÝNI.
Alls er húsið 26 hæðir og þar
með ein hæsta bygging í Kaup-
annahöfn. Á 25. hæð verður
enn einn veitingasalur með sæt-
um fyrir 85 gesti. Þaðan verður
eitt albezta útsýni yfir Kaup-
mannahöfn, sem um getur, og
munu Christianshavn, með
sjálfri höfninni, og sögufræg-
ustu hlutar Kaupmannahafnar,
frá Christiansborg til Amalien-
borg verða áberandi þættir í
þeirri heildarmynd.
í hótelinu verður innisund-
laug með gufubaði og þjálfunar-
herbergi. í anddyrinu verða
ýmsar smáverzlanir.
Hótel Skandinavia er skammt
frá miðborg Kaupmannahafnar,
í leið frá borginni til Kastrup-
flugvallar. Vagnar SAS, sem
ganga á milli flugvallar og mið-
borgarinnar munu hafa við-
komu við hótehð samkvæmt sér-
stakri áætlun.
FJÖLÞJÓÐLEGT
FYRIRTÆKI.
Það hefur tekið tæp þrjú ár
að reisa þetta stóra hótel. Það
var flugfélagið SAS, sem átti
frumkvæðið og stóð fyrir við-
ræðum við yfirvöld hersins um
kaup á lóðinni, sem var hin síð-
asta, er til greina kom fyrir nýt-
ingu af þessu tagi í hjarta borg-
arinnar.
Þegar samningar höfðu tekizt
stóð SAS fyrir stofnun fyrirtæk-
is til að hafa á hendi byggingar-
framkvæmdir og í maí í fyrra
gekk bandaríska hótelsamsteyp-
an Western International Hotels
inn í danska fyrirtækið sem
hluthafi og ennfremur var á-
kveðið, að hún skyldi annast
rekstur hótelsins. Síðar kom
japanska hótelfyrirtækið Prince
Hotel Corporation inn í þennan
félagsskap en það er deild úr
stórfyrirtækinu Seibu í Japan,
sem stundar margs konar starf-
semi á sviði iðnaðar, verzlunar
og samgangna.
Mikil kynning hefur farið
fram víða um heim á þessu nýja
hóteli og þegar hafa borizt þús-
undir af pöntunum á gistingu,
bæði fyrir yfirstandandi ár og
það næsta.
Alls munu 400 manns starfa á
Hótel Skandinavia, aðallega
Danir.
3
SONY-*
hUflmtoiii
itndir «in« i«hi orvARPSvioTÆKt
FM. og miöbylgja,
PLÖTUSPILARI,
KASSETTU
__________ SEGULBANDSTÆKI.
f l T i j TTjí 1j j i
■ V 1 ' 4 T 7 r /ijí i &'■’> íl
y WJ*# £ fMI
16
FV 4 1973