Frjáls verslun - 01.04.1973, Side 27
hafa ætíð fy“lgt þeirri grund-
vallarreglu að vera einu skrefi
á eftir hinum. Á því hefur til-
vera félagsins byggzt.
Hingað hafa komið margir
sölumenn og fulltrúar Boeing-
verksmiðjanna og lagt sig mjög
fram um að ná samningum um
breiðþotu. Ég tel vera viss göt
í útreikningum þeirra en við höf-
um ekki fengið greinargerð frá
Douglas-verksmiðjunum nýlega
um breiðþotu þeirra, DC-10.
Nú eru í notkun 160—200
breiðþotur í heiminum, mest Bo-
eing 747. Þær kosta nú 25 millj-
ónir dollara án varahluta, og það
er ekki hlaupið að því að láta
slík risafarartæki bera sig
rekstrarlega. Slík er reynsla
þeirra félaga flestra, sem hafa
fest kaup á breiðþotunum.
— í næsta mánuði hefja
Loftleiðir áætlunarflug til
Chicago. Hvað er unnið með
'því?
— Bilið milli fargjalda okkar
og annarra félaga hefur stöðugt
minnkað og hefur það leitt af
sér takmörkun á markaðssvæði
okkar. Með því að fljúga til
Chicago komum við til móts við
fraþega frá Miðríkjunum, sem
ella þyrftu að kosta sig til New
York að ná í vélar Loftleiða.
Með Chicago-fluginu getum við
boðið þessu fólki mun hagstæð-
ari fargjöld.
Flugréttindi til Chicago eru
geysiverðmæt og bandarískir
ráðamenn hafa verið sparir á
þau. Þangað fljúga aðeins 8
Evrópuflugfélög.
Við ætlum að hafa fimm ferð-
ir á sumrin til Chicago og senni-
lega tvær á veturna en jafn-
framt höldum við sama ferða-
fjölda á leiðinni New York—
Lúxemborg. Vonir standa til, að
nýtingin i Chicagofluginu verði
70% fyrsta árið.
— Þú ert ekki einvörðungu
forstjóri Loftleiða hér í New
York heldur stjórnar þú líka
rekstri og skrifstofuhaldi fyrir
félag suður í Karabíska hafinu,
Air Bahama, dótturfyrirtæki
Loftleiða. Hvað er að frétta af
því félagi?
— Já. Það er rétt. Það var í
febrúar 1969, sem við keyptum
Air Bahama, en þá hafði það
félag starfað í 250 daga og tap-
að 10.000 dollurum á dag. Air
Bahama flaug frá Nassau til
Lúxemborgar og var komið inn
á markað Loftleiða í Flórída.
Á því leikur enginn vafi að
Air Bahama hefði getað orðið
okkur hættulegt, þó að illa
gengi hjá þeim í byrjun. En með
góðri aðstoð Péturs Thorsteins-
sonar, sem þá var sendiherra í
Washington, var þetta fyrirtæki
keypt og síðustu tvö árin hefur
það skilað smávægilegum hagn-
aði. Lagaflækjur voru miklar í
sambandi við kaupin og mála-
ferli risu út af þeim í Nassau
og Flórída. Það er fyrirtækið
Hekla Holdings Ltd. í Nassau,
sem á öll hlutabréf í Air Ba-
hama, en svo til öll hlutabréf
þess félags eru í eigu Loftleiða.
Öll sölustarfsemi fyrir Air Ba-
hama er á vegum Loftleiða.
Flogið er sex sinnum í viku
á sumrin milli Nassau og Lúx-
emborgar og þrisvar á vet-
urna og voru farþegar í fyrra
80 þúsund, þar af voru 55% að
vestan, mest frá Flórída. Heild-
arveltan hjá Air Bahama var 9
milljónir dollara í fyrra.
— Hve margir starfsmenn
eru hjá Loftleiðum í Banda-
ríkjunum?
— Það eru alls 250 manns,
þar af 40 íslendingar. Við höfum
skrifstofur í Washington, Chi-
cago, Houston, San Francisco og
Miami auk New York. Einnig
eru skrifstofur okkar í Mexico
og Kólumbíu, en umboðsmenn
í Equador, Panama, San Salva-
dor og Guatemala. Um 85% af
öllum farþegum okkar koma
fyrir milligöngu ferðaskrifstofa,
Ccandinavia begins in
lCELAND
^ ICHAHDIC LOFTMDm
Sell IŒLAND-
totcíthe .
unspoHed œuntrlesl
Loftleiðir auglýsa mikið í ferðamálatímaritum. Fyrir skömmu birtist þessi auglýsing í ritinu
Travel Agent og henni fylgdi nýr bæklingur Loftlciða um ferðir til Norðurlandanna.
FV 4 1973
27