Frjáls verslun - 01.04.1973, Síða 37
American Express
Umfangsmikil Islandskynning
í undirbúningi
— í tilefni af 1100 ára afmæli íslandsbyggðar
Það var eftir því tekið, þegar fjölmargar prjónastofur um
land allt fóru að framleiða eina ákveðna prjónakápu í tug-
þúsundatali í fyrra til að senda á Ameríkumarkað. Kaupand-
inn vestan hafs var fyrirtækið American Express, nánar til-
tekið sú deild, sem annast útgáfu svonefndra „credit-cards“.
American Express ætlar að halda áfram sölu á íslenzkum
vörum í Bandaríkjunum og hefur nú sitthvað í undirbúningi
þar að lútandi.
James A. Lancaster, fulltrúi hjá American Express, sýnir liér
nokkrar af hinum íslenzku framleiðsluvörum, sem American Ex-
press mun hjóða viðskiptavinum sínum í kynningunni „Discover
Iceland".
American Express er einn af
nokkrum aðilum í Bandaríkjun-
um sem gefa út ,,credit-cards“,
sem handhafar geta notað sem
eins konar ávísanir. Málin hafa
þróazt á þann veg, að náið sam-
band hefur verið tekið upp við
þessa viðskiptamenn með því að
senda þeim tilboð um kaup á
margs konar vörum, sem al-
mennt eru taldar hafa sérstöðu
á hinum bandaríska markaði og
ekki eru fáanlegar í verzlun á
næsta götuhorni.
FJÁRSTEKKIR
EINSTAKLINGAR.
Yfirleitt er þessi varningur
alldýr og mið tekið af því, að
handhafar American Express-
kortanna eru meðal fjársterk-
ustu einstaklinga í veröldinni
og í Bandaríkjunum nota t. d.
um 95% allra stærstu fyrirtækja
landsins þessa þjónustu Ameri-
can Express.
Fulltrúar Frjálsrar verzlunar
litu inn hjá James A. Lancaster
hjá American Express í New
York og inntu hann nánar eftir
upplýsingum um viðskiptin við
ísland.
PÓSTKOSTNAÐUR $ 175.000.
Lancaster sagði, að fyrsta
kynning vegna íslenzku prjóna-
kápunnar hefði verið gerð í októ-
ber 1971 og var verðið ákveðið
í útsölu $ 89.95 fyrir hverja flík.
í fyrstu var kápan kynnt fyrir
100 þúsund viðskiptamönnum
með litprentuðum bæklingi, sem
til þeirra var sendur. Síðan voru
kynningarrit send til enn stærri
hóps og má geta þess, að póst-
kostnaður vegna þessarar kynn-
ingar á íslenzku kápunni einn
saman nam um $ 175.000. Sagði
Lancaster, að brúttósala á káp-
unni næmi um 30 þúsund stykkj-
um.
í október á þessu ári verður
síðan kynntur nýr fatnaður frá
íslandi, það er að segja þrjár
prjónakápur, sem kynntar verða
FV 4 1973
37