Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1973, Side 45

Frjáls verslun - 01.08.1973, Side 45
Samgöngumál: Fyrirhuguð kaup á skipi ■ stað Akraborgar Senn líður að því, að Akra- borg-in, sem lialdið heíur uppi siglingum, milli Reykjavíkur og Akraness í 16 ár, hætti í þeim ferðum og nýtt skip komi í hennar stað. Á síðasta aðalfundi Skalla- Gríms h.f., sem er eigandi Akraborgar, var ákveðið að selja skipið og kaupa annað í staðinn. Er Akraborgin nú komin á söluskrá, og gera for- ráðamenn Skalla-Gríms sér vonir um að fyrir hana fáist um 20 milljónir króna. Fýrir nokkru barst tilboð í hana frá skipafélagi í Austurlöndum nær og hljóðaði það upp á rúmar 18 milljónir. FERJA FYRIR 30-35 BÍLA Framundan er klössun á Akraborginni, sem reyndar var frestað áður, en hún mun nú eiga að fara fram eftir ára- mót, og gera forstöðumenn Skalla-Gríms sér jafnvel von- ir um að nýtt skip fáist fyrir þann tíma. Tilboð liggur þeg- ar fyrir um fjögurra ára skip frá Noregi og myndi það kosta 76 millj. króna. Nýtt skip af því tagi, sem hæfa þætti hér, kostar 130-140 millj. Megin- áherzla verður lögð á, að skip, er kæmi í stað Akraborgarinn- ar tæki 30-35 bíla á yfirbyggt dekk og yrði um þrjá stundar- fjórðunga á milli Akraness og Reykjavíkur. Akraborgin tek- ur með góðu móti sex bíla og er klukkustund á leiðinni milli endastöðva sinna og oft hafa menn verið tregir til að láta bíla um borð, ef eitthvað hef- ur verið af veðri, vegna hættu á að sjávarselta settist á bíl- ana. En til að gera rekstur bílaferju á þessari leið mögu- legan vantar hafnaraðstöðu bæði á Akranesi og í Reykja- vík, en gert er ráð fyrir að bílum verði ekið beint um borð og frá borði. Til þess þarf skip- ið að geta siglt inn á sérstakt lægi, þar sem það yrði opnað að framan fyrir bílana. Mikill munur á flóði og fjöru gerir þetta nokkuð erfitt tæknilega, en ýmsar nýjungar hafa komið fram í þeim efnum upp á síð- kastið, sem nota mætti hér- lendis, Að sögn Þórðar Hjálm- arssonar, framkvæmdastjóra Skalla-Gríms, er nú aðeins beðið eftir endanlegri afstöðu stjórnvalda til hugmyndarinn- ar um að kaupa nýtt skip, en fyrstu viðbrögð hafa verið já- kvæð. Bílaflutningar milli Akraness og Reykjavíkur hafa farið mjög vaxandi á þessu ári, en í fyrra voru fluttir samtals 3060 bílar. Með Akraborginni voru að með- altali fluttir 5000 farþegar á mánuði í fyrra, en í júlí á þessu ári var þessi tala 6000 farþegar og er greinilegt að farþegafjöldinn er mun meiri í hverri ferð, þegar vel viðrar. Fyrir flutning á bíl eru nú teknar 300 krónur og fargjald- ið fyrir hvern farþega er hið sama. ÞRJÁR FERÐIR Á DAG Akraborgin flytur nú aðeins póst og blöð auk farþega og bíla og eru farnar þrjár ferðir á dag. Frá Akranesi er farið kl. 8,30, 13,15 og 17, en kl. 10, 15 og 18,30 úr Reykjavík. Þannig er áætlun haldið alla daga ársins að fjórum undan- skildum á stórhátíðum. Það telst líka til algjörra undan- tekninga að ferð falli niður vegna veðurs. Taprekstur hefur verið a Akraborginni síðustu árin, að árinu 1971 undanskildu. 1 fyrra varð rekstrarhalli um 1,3 milljónir og hafði ríkið þá lagt til 5,2 milljónir í reksturinn. Forráðamenn Skalla-Gríms telja, að fyrirhuguð gerð brú- ar yfir Borgarfjörð muni örva bíla- og farþegaflutninga með skipi milli Akraness og Reykja- víkur, enda tekur bílferð fyrir Hvalfjörð nú hátt á aðra klukkustund. Má segja, að menn myndu spara sér klukku- tíma með því að fara sjóleið- ina, þegar í förum verður ferja, sem siglir á rnilli á þrem- ur stundarf jórðungum. Borg- nesingar hafa sýnt þessu skipa- máli aukinn áhuga eftir að ljóst hefur orðið að brúargerð yfir Borgarfjörð er í sjónmáli. Akraborgin hefur flutt a'ð meðaltali 5000 farþega árlega hin síð- ari ár. FV 8 1973 45

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.