Frjáls verslun - 01.10.1973, Qupperneq 19
Bílasala
Tregða ■ endursölu nýlegra árgerða
Mikið framboð er á notuðum bílum á Aðalbílasölunni.
Mjög mikill innflutningur
nýrra og notaðra bíla hefur
eðiilega aukið framboð á eldri
bíium hér innanlands. Vitað er,
að margir bílaeigendur hafa
lent í nokkrum crfiðlcikum
með að losna við gamla bíia
sína, og kannaði FV j>að hjá
tveim bílasölum fyrir skömmu,
hvernig ástandið raunverulega
væri.
Hjá Bílasölu Heklu var okk-
ur tjáð, að mikil tregða væri
yfirleitt í sölu árgerða ’71, ’72
og ’73. Eldri bílar og þá sér-
staklega þeir, sem eiga að selj-
ast á verði innan við 200. þús.
krónur, seljast hins vegar
miklu betur. í þessu sambandi
er þó rétt að hafa hugfast, að
tímabilið september fram til
áramóta er yfirleitt erfitt fyrir
bílasölu.
Hjá Heklu hafa eldri bílar
verið teknir upp í verð á nýj-
um bílum og hefur gengið mis-
jafnlega að losna við þá aftur.
Hefur fyrirtækið því nær und-
antekningalaust sett þá reglu
að taka aðeins Volkswagen-
bíla af eldri árgerðum. Eru þeir
almennt i hæsta endursölu-
verði á bílamarkaðinum hér.
Þeir, sem selja gamla bíla
um þessar mundir, þurfa að
gera ráð fyrir að lána veruleg-
ar upphæðir. Af bílverði upp
á 300 þús. krónur má reikna
með 100 þús. króna láni, sem
greiðist með mánaðarlegum
greiðslum upp á 10-15 þúsund.
Nokkuð hefur borið á því, að
gangverð á eldri bílum færi
lækkandi að undanförnu, og
eru bilar, sem myndu hafa ver-
ið seldir á 340-350 þús. í ágúst
nú komnir niður í 300 þús.
Þetta á þó ekki við um enn
eldri bíla á markaðinum, eins
og árgerðirnar ’64 og ’65. Verð
á þeim hefur lítið sem ekkert
lækkað frá í sumar.
Fulltrúi Aðalbílasölunnar á
Skúlagötu hafði mikið til
sömu sögu að segja. Mikið
framboð er á notuðum bílum
og segir innflutningur á not-
uðum amerískum bílum þar
talsvert til sín. Árgerðir ’71 og
’72 seljast nú á 500-600 þús.
krónur og hefur framboð á
þeim dregið áberandi mikið úr
sölumöguleikum fyrir jafn-
gamla evrópska bíla.
Annars er það nokkuð til-
viljanakennt, hve langan tíma
tekur að selja bíl. Stundum
gerist það, að bíllinn fer um
leið og hann kemur á söluskrá,
en oft selst hann alls ekki og
þá vegna þess, að eigandi ætlar
að halda verðinu á honum 1
hámarki. Eru dæmi um tiltölu-
lega nýlega bíla, sem hafa nú
verið á söluskrá í hálft ár, en
ekki selzt af þessum sökum.
Hjá Aðalbílasölunni fengum
við ennfremur þær upplýsing-
ar, að oft væri hægt að ná
mjög hagstæðum samningum
um greiðslukjör. Þess væru
dæmi, að í 300 þús. króna bíl
væru ekki borguð út nema 100
þús. og afgangurinn á 15 mán-
uðum.
FRJÁLS VERZLUN — IÞRÓTTABLAÐIÐ — SJÁVARFRÉTTIR
eru gefin út af Frjálsu framtaki h.f.,
Laugavegi 178. — Sími 82300 - 82302. GERIZT ÁSKRIFENDUR.
FV 10 1973
19