Frjáls verslun - 01.10.1973, Qupperneq 61
jafnvel undandrátts. Hvar þessi prósenta ligg-
ur er erfitt að meta og einfaldasta lausnin yrði
að fara út í virðisaukaskattinn.
Guðmundur: Við getum ekki sagt að einn
skattur sé góður eða vondur, nema að bera hann
saman við einhvern annan, sem gefur sömu
heildarupphæð.
Getum við fundið skatttegund, sem gefur
sömu upphæð í skatttekjum, en hefur ekki
jafn skaðleg áhrif? í því sambandi hljótum við
að líta til virðisaukaskattsins, sem hægt er að
framkvæma með ýmsum hætti.
Með hreinum virðisaukaskatti myndu íslenzk
fyrirtæki sleppa við ýmis gjöld, sem þau greiða
núna. Útflutningurinn myndi t. d. ekki greiða
uppsafnaðan söluskatt, vegna kaupa á vörum
og þjónustu hér innanlands. Og með hreinum
virðisaukaskatti myndu fyrirtækin ekki greiða
söluskatt af fjárfestingarvörum sínum.
f þessum tilfellum höfum við rætt um hrein-
an virðisaukaskatt. Það er hann þó ekki alls
staðar í löndunum umhverfis okkur.
Hjörtur: Það væri fróðlegt að ræða dálítið
nánar um virðisaukaskattinn og heyra t. d. álit
Jóns á honum. Þú hefur talið ýmsa annmarka
á að innleiða hann hér, Jón, og tekur þá mið
af reynslunni á Norðurlöndum?
Jón: Það leikur enginn vafi á, að virðisauka-
skatturinn er í eðli sínu miklu ákjósanlegri
skattur en söluskatturinn. Hann losar skatt-
kerfið við ákveðna vankanta, sem eru þeim
mun meir áberandi eftir því sem söluskatts-
prósentan verður hærri. Hinu er svo ekki að
levna, að umskinti milii tekjuöflunarkerfa af
þessu tagi eru mikið mál. Það þarf mikið skipu-
laes- og framkvæmdaátak til þeirra. f Noregi
telja menn þennan skatt mun erfiðari og óörugg-
ari í framkvæmd en gamli söluskatturinn hjá
þeim revndist vera. Þetta er snurning um að
vega og meta kosti og galla. Hún á þó ekki að
hafa bein áhríf á ákvörðun um það, hvort taka
skuli unp virðisaukaskatt. Miklu frekar er þetta
snurning um, hversu fyrirhafnarmikið sé að
gera bað og hvað þurfi svo að þessi skattheimta
verði öruggari en sú skattheimta, sem við höf-
um. b. e söluskattsheimtan.
RrvnjAlfur: Att.u bá við skattaeft.irlitið?
.Tón: .Tá. til dæmis. Og raunar fvrirhöfn. Aðal-
andstæðingar virðisaukaskattsins í Danmörku á
sínum tíma vom viðskintaaðilarnir eins og
verzlunin. Hnn taldi, að af honum myndi stafa
svo mikil fvrirhöfn og papnírsflóð. En þeir
hafa nú sannfærzt. Því er ekki að levna, að
mað virðisaukaskattinum rísa nv vandamái. Það
verða til nviar aðferðir til undandráttar og til
þess að mæta heim þarf nviar aðgerðir. Ég legg
áher7lu á. að þetta er aðeins hát.tur, sem við
yei-ífiiTn að hafa mið af í ákvörðuninni.
Hiörtur: Mér svnist virðisaukaskatturinn hafa
einna mesta bvðingu frá siónarmiði skattheimt-
unnar. Hann hefur eiginlega innbvggt kerfi.
sem ætti að draga miög úr undandrætti. Hann
er greiddur stig af stigi og segja má, að hver
hafi hemil á öðrum.
.Téu: Já. Þetta eru einmitt þau rök, sem ails
staðar hafa verið notuð. þar sem skatturinn hef-
ur verið innleiddur í náerannalöndunum. En
jafnframt hafa bessi rök revnzt vera háifgerð
biéðsaea. Ptiórnmálamenn hafa notað þetta og
svona má segia. að máiið líti út á blaði, en þeg-
ar kemur út í framkvæmdina, þar sem einn
Hjörtur: Ég tel, að virðisaukaskatt'arinn hafi
þann mikla kost, að hann drcifist á milli
margra aðila og hann verður að vissu leyti
greiðslulega léttari á liverjum aðila fyrir sig.
aðili gerir viðskipti við kunningja sinn, þá er
allt til.
Brynjólfur: Með virðisaukaskatti verður eftir-
litskerfið óhjákvæmilega miklu umfangsmeira.
Og kannski ekki síður hitt, sem menn vilja
halda fram, að kosturinn við söluskattinn er
sá, að með honum er hægt að halda mismun-
andi skatti eftir vöru og þjónustu. Mér skilst,
að í Bretlandi og víðar sé hann í þremur flokk-
um eða svo. Annmarkinn á virðisaukaskatti er
sá, að geta ekki mismunað á nauðsynjavöru, ef
við teldum það æskilegt.
Hjörtur: Ég tel, að virðisaukaskatturinn hafi
þann mikla kost, að hann dreifist á milli margra
aðila og hann verður að vissu leyti greiðslulega
léttari á hverjum aðila fyrir sig.
Guðmundur: Virðisaukaskatturinn er skattur,
sem innheimtur er á mörgum stigum, andstætt
söluskatti, sem innheimtur er á lokastigi. Ef við
sleppum ýmsum fræðilegum vangaveltum, lend-
ir virðisaukaskatturinn að lokum einungis á
einkaneyzlunni og íbúðafjárfestingu. Þess vegna
hef ég spurt forsvarsmenn fyrirtækja að því í
mörg ár, af hverju þeir berðust ekki fyrir virð-
isaukaskatti í stað þess að berjast á móti því
að söluskatturinn hækki á t. d. vélum og tækj-
um.
Hjörtur: Ég er hlynntur virðisaukaskatti.
Guðmundur: Já. Þið eruð fyrst að taka við
ykkur núna. En við verðum líka að gera okk-
ur grein fyrir, hvað þetta þýðir fyrir einstakl-
ingana á móti. Það þarf að hafa hærri prósentu
í hreinum virðisaukaskatti en í söluskatti vegna
þess, að talsverður hluti fyrirtækjanna sleppur.
Byrðin lendir því aðallega á einkaneyzlunni og
íbúðafj árf estingu.
Jón: Þarna yrði einfaldlega um tilflutning
á skattbyrði að ræða.
Guðmundur: Það sama gildir um virðisauka-
skattinn, söluskattinn og skatta á einstakling-
um, að þegar skattaprósentan fer upp, sleppa
menn með ýmsu móti eins og fram hefur kom-
ið í nágrannalöndunum. Þeir ríku sleppa með
bví að flytjast til annarra landa, skrásetja sig
í Sviss, og svo skiptast fyrirtækin á „ókeypis“
FV 10 1973
61