Frjáls verslun - 01.10.1973, Qupperneq 72
hins vegar tekið upp á því að
haia opiö aiit áriö þar, með
þvi að njóða íeröamonnum að
dveija á hoteium staðar-
ins iyrir náKvæmiega heim-
ing þess verös, sem greitt er á
aoarannatimanum. tLeiur þetta
reynst vmsæit og geiið góða
raun. Erienair lerðamenn og
banaariKjamenn sjaiiir haía
getaö notiö sumarieyía sinna
í ivnami miKinn hiuta ársins
íyrir mjog iágt verð á íyrsta
ííokKs noteium án þess að
kaina í íóiKsmergð og þeim
ópægindum, sem því fyigir.
Geta má þess, að nú i október
og íram að jóium geta ísienzk-
ir ierðamenn íerðast til Miami
á vegum noítieiða, sem sam-
eina sin lægstu vetrariargjoid
lagum fiugxargjöidum innan
Banaaríkjanna og iágum hótel-
kostnaði, þannig aö útkoman
verður svipuð og á sams konar
ferðum tii bpánar.
Miami, og Florida i heild,
hafa ijoidann ailan af óvenju-
legum og athygiisverðum stöð-
um upp á að bjóða. í Miami
og næsta nágrenni má nefna
t. d. „Seaquarium", sem er
stærsta sæúyrasafn í heimi, op-
inn dýragarð, „Lion Country
Safari“, þar sem hægt er að
aka um í bifreiðum meðal villi-
dýra. „Everglades“ er einn
þekktasti þjóðgarður Banda-
ríkjanna, þar sem náttúra og
dýralíf hefur haldizt að mestu
leyti óskert.
Miami Beach er ekki sízt
þekkt fyrir sjóskíðaíþróttina
og sjóstangaveiðar, sem hægt
er að stunda þar eins og menn
lystir. Frá Miami er hægt
að fara í ferðir til hins nýja
Disney World í Orlando og
Cape Kennedy geimferðastöðv-
arinnar. Flestir munu kannast
við undraland Disneys að
minnsta kosti af afspurn, en
fyrir skömmu var opnaður nýr
slíkur skemmtigarður í Flor-
ida, sem er öllu stærri og veg-
legri en sá upprunalegi í Kali-
forníu. Er Disney World sá
staður, sem fólk flykkist til að
sjá án tillits til aldurs. Einnig
er boðið upp á skoðunarferðir
til geimrannsóknastöðvarinn-
ar á Kennedy-höfða, þaðan sem
Bandaríkjamenn hafa skotið
mörgum af sínum geimflaug-
um á loft. Sem sagt, það^ vant-
ar ekki viðfangsefni fyrir þá,
sem vilja skoða sig um og
kynnast nýjum og óvenjuleg-
um hlutum.
ÖLL HUGSANLEG ÞÆGINDI
Þeir, sem vilja halda sig um
kyrrt verða heldur ekki fyi'ir
vonbrigðum. Mikill fjöldi
góðra hótela liggur meðfram
ströndum Miami. Miami er
gróinn ferðamannastaður, þar
sem séð er fyrir þörfum ferða-
mannsins á allan hátt með öll-
um hugsanlegum þægindum,
sem ekki þekkjast annars stað-
ar, en sem Bandaríkjamenn
taka sem sjálfsagðan hlut.
Miami Beach hefur frá upp-
hafi verið byggð upp með það
fyrir augum að þóknast vand-
látum, efnuðum ferðamönnum
og stórum ráðstefnuhöldum,
þannig, að ferðamenn geta reitt
sig á að verða ekki fyrir skipu-
lags- eða húsnæðisvandamál-
um, sem hrjá suma aðra ferða-
mannastaði.
Þar sem Miami er nálægt
miðbaug er veðurfar þar nokk-
uð jafnt allt árið í kring. Nokk-
uð heitt getur verið yfir há-
sumartímann, en ekki óþægi-
lega heitt, þar sem rakastig er
yfirleitt ekki hátt og mild haf-
gola hjálpar til. Öll meiri hátt-
ar hótel hafa loftkæld herbergi
og sali, eina sundlaug eða
fleiri og liggja niður að heitu
Suður-Atlantshafi, sem er
nokkuð heitara en Miðjarðar-
haf. Miami Beach býður upp á
fjölmarga næturklúbba með
heimsfrægum skemmtikröftum
og er sennilega vandleitað að
fjölbreyttara næturlífi.
Veitingahús á Miami Beach
eru á heimsmælikvarða og er
mikil fjölbreytni hvað matar-
gerð og verð snertir. Eins og
annars staðar í Bandaríkjunum
er hægt að finna alla verð- og
gæðaflokka af veitingastöðum.
T. d. er hægt að borða sig
íullsaddan af McDonalds ham-
borgurum fyrir innan við einn
dollar og upp í ljúffengar
steikur, sem geta kostað allt
að því jafn mikið og matur á
veitingahúsum hér á íslandi.
Sérstaklega ber að benda á
hina sérstöku sjávarrétti, sem
Miami er þekkt fyrir.
HAGSTÆÐAR FERÐIR
LOFTLEIÐA
Loftleiðir hafa undanfarið
boðið upp á hagstæðar ferðir
til Miami. Ástæða er til að
ætla, að þessar ferðir nái vin-
sæidum hér. Mikill fjöldi ís-
lendinga ferðast árlega erlend-
is. Ekki er óeðlilegt að íslenzk-
ir ferðamenn vilji snúa sér frá
hinum hefðbundnu stöðum,
sem þeir hafa farið til fram
að þessu, og vilji kynnast ein-
hverju nýju. Nú gefst almenn-
ingi kostur á að kynnast
Bandaríkjunum og bandarísku
þjóðlífi á hagkvæman hátt.
Fram að þessu virðist einkum
þrennt hafa varnað íslenzkum
ferðamönnum þess að ferðast
til Bandaríkjanna: Hátt verð-
lag, fjarlægðin, og rangar hug-
myndir um þjóðfélagsvanda-
mál Bandaríkjanna, sem vald-
ið hafa því, að ekki er óalgengt,
að fólk haldi, að einhver skálm-
öld ríki þar. Tvö fyrstu vanda-
málin eru yfirstigin með ódýr-
um þotuferðum Loftleiða og
hið þriðja mun hverfa, þegar
íslendingar fara að kynnast
Bandaríkjamönnum af eigin
raun.
72
FV 10 1973