Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1973, Qupperneq 74

Frjáls verslun - 01.10.1973, Qupperneq 74
ekki rétt innstillt á stjórnunar- störf. Margir álíta að góð mennt un hafi allt að segja en það er hinn mesti misskilningur. Það að geta unnið við stjórnun er fyrst og fremst eiginleiki sem byggist minna á skólalærdómi en þjálfun. í Danmörku eru t. d. 50% stjórnenda fyrirtækja, sem vel ganga, ómenntaðir. Til að geta stjórnað þurfa menn því að vera opnir, áhuga- samir og drífandi. Maður þarf stöðugt að vera leitandi og laus við fordóma gagnvart nýjum hugmyndum. Það er ekki óalgengt að stjórnendur fyrirtækja álíti að fullkomnunin leysi allan vanda, Það er líka misskilningur. Aukning vinnuhraðans um nokkrar sekúndur með því að láta starfsmann vinna starf sitt á einhvern annan hátt hefur ekkert að segja. Það sem skipt- ir máli er að gera rétta hluti, en ekki að gera alla hluti rétt. Það skiptir t. d. litlu máli að finna góðar starfsaðferðir ef lítil þörf er svo fyrir fram- leiðsluna. Til að bæta rekstur fyrirtæk- isins, þarf fyrst að bæta stjórn- anda þess. Fyrst þarf að losa hann við fordóma, sem getur verið mjög erfitt. Hann þarf að vera reiðbúinn til að hlusta á aðra og fallast á nýjar hug- myndir, þó svo að þær falli ekki saman við hans eigin, Síðan þarf að kenna honum að sjá að- alatriðin og forðast að kaffæra sig í smáatriðum. Ef við lítum á þau fyrirtæki, sem bezt ganga, sjáum við að þau eru nýtízkuleg og það ligg- ur hugmyndaríki að baki starf- semi þeirra. Framleiðsla þeirra eða þjónusta er gjarnan svolítið öðruvísi en keppinautanna. Það er þess vegna gott fyrir stjórn- endur að spyrja sjálfa sig: Hvers vegna er ég að þessu? Það eru allt of margir, sem að- eins hugsa um stöðu sína innan ákveðinnar viðskiptagreinar en ekki hvaða gagn þeir eiga að vinna þjóðfélaginu, og verða svo gamaldags fyrir vikið. Áætlanagerð nauðsynleg. Það er einkennandi fyrir marga stjórnendur fyrirtækja, að þeir vaða blint áfram þar til kassi fyrirtækisins er orð- inn tómur. Þá fyrst fara þeir að hagræða og þeirra vanda- mál verða því að halda fyrir- tækinu starfandi en ekki vax- andi. Þess háttar „management crises“ getur auðvitað ekki við- gengizt til frambúðar. Stjórnendum fyrirtækja er si- fellt að verða ljóst að áætlun- argerð er nauðsynleg. Það er mikilvægl að stjórnandir.n líti í kringum sig og hugsi sig um áður en ákvarðanir eru teknar, en að ekki sé beðið eftir ógöng- unum. Mér virðist þetta ekki sízt vera vandamál hér á fs- landi. Ríkið er nú að reyna að inn- leiða hérna nýtt bókhaldskerfi sem í mínum augum skiptir engu máli. Ég tel það vera mik- ilvægara að ríkið beiti sér fyr- ir og auðveldi áætlanagerð fyr- irtækja í stað þess að koma á „sagnaritunar“ kerfi, sem orðið er úrelt, enda búið til í Noregi og Þýzkalandi fyrir stríð. Skortur á áætlunargerðum á vegum ríkisins háir auðvitað áætlunargerðum fyrirtækja og kemur þeim oft í vandræði. En mér virðast augu stjórnmála- manna vera að opnast fyrir gildi áætlunargerða á vegum ríkisins. Þá má einnig segja að skortur á opinberum áætlunum skapi enn meiri nauðsyn hjá fyrirtækjum að gera áætlanir. Sköpunarþörfin vandamál. Velgengni fyrirtækis er nauð- synleg tgott samband yfirmanna við starfsfólk. Stjórnandi fyr- irtækisins þarf að geta samein- að tvenns konar hagsmuni. Annars vegar er fyrirtækið, sem þarf að lifa og vaxa og hins vegar er starfsfólkið með sínar þarfir. Stjórnandinn má aldr- ei gleyma, að starfsfólk hans eru manneskjur, sem verða að finna, að á þær er litið sem slíkar en ekki sem þræla. Sú hugmynd að stjórnandinn eigi að sýna vald sitt og halda fjarlægð á milli sín og starfs- fólks er úrelt. Góður stjórnandi á að leggja sig fram við að leysa vandamál og koma til móts við starfsfólkið, en hann verður einnig að gæta sín á því að ganga ekki of langt, þannig að árekstur verði á milli hagsl muna. Eitt vandamál, sem eykst með aukinni menntun ungs fólks, er að því finnst það ekki vera nema ómerkilegur þátt- ur í framleiðslunni. Það fær ekki útrás fyrir sköpunarþörf sína og finnur því til leiðinda í starfi sínu. Fyrirtæki verða þess vegna að leggja sig fram við að auka fjölbreytni starfsins eins og kostur er. Þetta er mik- ið vandamál í iðnaði í dag, sem nauðsynlegt er að finna lausn á. Verðlagseftirlit — þjóðfélaginu til skaða. Strangt verðlagseftirlit er að- eins bráðabirgðalausn, sem ætl- að er að bjarga skinni stjórn- málamanna. í því felst engin framtíðarlausn, hvorki fyrir neytendur, fyrirtæki eða þjóð- félagið í heild, heldur veldur það beinum skaða. Það þvingar fyrirtæki til að hætta fram- leiðslu á vörum, sem dýrari eru í framleiðslu auk þess sem gæði geta minnkað. Þetta kemur fyrst og fremst niður á neyt- endum. Auk þess held ég, að ströng verðgæzla sé mjög veikt vopn í baráttunni gegn verð- bólgu. Er þar handhægast að nefna ísland sem dæmi. Við búum í þjóðfélagi þar sem stöðugar framfarir eru og þess vegna á ríkið ekki að binda at- hafnalífið niður með óþarfa af- skiptum. Þetta leiðir mig inn á ann- að atriði ekki óskylt og sem ekki er óþekkt á Islandi, en það er aðstoð ríkisins við einstök fyrirtæki. Það getur á ákveðn- um stöðum verið nauðsynlegt atvinnulífi að ríkið hlaupi und- ir bagga, en það getur einnig haft slæmar afleiðingar ef stjórnendur venja sig á að leita stöðugt til ríkisins þegar ilia gengur. Það skapar ákveðna værukærð, og leiðir til skrif- finnsku. Stjórnendur verða að leggja megin áherzlu á að hjálpa sér sjálfir eins og sjó- maðurinn, sem biður ekki um meðbyr heldur lærir að sigla,“ sagði próf. Hansen oð lokum. 74 FV 10 1973
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.