Frjáls verslun - 01.10.1973, Page 78
Verðlaunastólarnir og Varia hillusamstæða.
Húsgagnaverzlun
Kristjáns Siggeirssonar:
Stóll með
nautshúð
Varia-húsgögnin, sem fást í
Húsgagnaverzlun Kristjáns
Siggeirssonar hafa átt miklum
vinsældum að fagna undanfar-
inár. Þessi vinsælu húsgögneru
vegghúsgögn, hillu- og skápa-
einingar, og skera þau sig úr
vegna ótal möguleika í upp-
setningu. Varia-húsgögn henta
á hvert lieimili og geta kaup-
endur valið um margs konar
gerðir af bókahillum og skáp-
um. Einnig geta þeir valið um
sökkul eða fætur undir stakar
bókahillur og skápa.
Varia-húsgögn eru framleidd
í 16 mismunandi einingum og
tveim breiddum, 56 sm og 110
sm. Dýpt á bókahillum er 26V2
sm, en á skápum 42 sm. Varia
gefur einnig þrjá möguleika
um val á viðartegundum og
geta kaupendur valið um eik,
teak og dökkt mahogny.
Verðið er mjög samkeppnis-
hæft, og kostar hver eining þ.
e. skápar og hillur 25-30 þús-
und krónur.
Til sölu í húsgagnaverzlun
Kristjáns Siggeirssonar eru
stólar, sem vakið hafa tals-
verða athygli. Þetta eru ís-
lenzkir stólar, hannaðir af
Gunnari H. Guðmundssyni,
arkitekt.
Nautshúð er í setu og baki
stólsins, en stellið er úr reyktri
eik. Sérstakur glæsibragur er
yfir stólum þessum. Þeir
eru sígildir og eiga við á
hverju heimili.
Þeir eru mjög vandaðir og í
hæsta gæðaflokki. Kostar hver
stóll 28.800 krónur og liggur
meira en helmingur verðsins í
nautsskinninu í setu og baki.
Stóll þessi var m. a. valinn
bezta húsgagnið á alþjóðasýn-
ingu, sem haldin var í London
á þessu ári.
Jón Loftsson h.f.:
Aton húsgögn
Húsgögn frá húsgagnagerð-
inni Aton á Stykkishólmi eru
nú mjög vinsæl. Þau eru að
miklu leyti smíðuð úr íslenzk-
um viði, og hönnuð af Dag-
bjarti Stígssyni, eiganda hús-
gagnagerðarinnar.
Til eru mjög skemmtileg
sófasett. Má þar nefna fallegan
þriggja sæta sófa, tveggja sæta
sófa og stól. Allt myndar þetta
fallegt sófasett. Úrval af áklæð-
um er á boðstólum bæði klass-
ísk og í sterkum litum, sem
njóta mikilla vinsælda nú.
Úrval borða við sófasettið
má einnig fá hjá Jóni Lofts-
syni h.f. Til eru nokkrar gerð-
ir af Aton borðum, hornborð,
sófaborð og spaðaborð. Til eru
fjórar gerðir af sófaborðum.
Borð með sléttri plötu og einn-
ig er hægt að velja úr þremur
gerðum af kopar á borðplöturn-
ar. Borð þessi eru sérlega fall-
eg húsgögn. Sama er að segja
um hornborðin og spaðaborð-
Aton sófasett og stuðíabergsstóll.
in. Þau eru einnig fáanleg með
fjórum gerðum af kopar og
sléttri plötu.
Senn eru væntanleg á mark-
aðinn tvær nýjar gerðir af
Aton sófasettum og eru þau
m. a. með hærra baki. Sófasett
frá Aton kostar um 94 þúsund
krónur. 3ja sæta sófi kostar um
41 þúsund krónur, 2ja sæta
31400 krónur og hver stóll um
21600 krónur.
Einnig má nefna geysifalleg-
an stuðlabergsstól frá Aton.
Hann er nefndur svo, því að
hann er í líkingu við íslenzka
stuðlabergið og bryddaður kop-
ar. Slíkur stóll kostar um 27
þúsund krónur og er mjög vin-
sæll.
78
FV 10 1973