Frjáls verslun - 01.01.1975, Qupperneq 7
Þing Alþýðusambands
Islands verður haldið á
næsta ári og eru verka-
lýðsforingjarnir þegar
komnir í vígahug enda
búizt við miklum átökum
við kosningu forseta og
sambandsstjórnar.
Kommúnistar í verka-
lýðsfélögimum hafa al-
gjörlega snúið baki við
Birni Jónssyni, sem verð-
ur nú að treysta á fylgi
annarra en kommúnist-
anna í samtökun'um, ætli
hann sér að ná endur-
kjöri. Er það tvísýnt spil,
því að ekki er vitað
gjörla imi afstöðu þeirra
Framsóknarmanna í
verkalýðsforustunni, sem
hafa staðið vinstra meg-
in í fylkingunni til þessa.
Kommúnistar eru þegar
farnir að reka áróður
fyrir forsetaefni sínu,
sem er Benedikt Davíðs-
son, trésmiður.
Ríkisstjórnin hefur í
hyggju að hefja öfluga
kynningu á útfærslu fisk-
veiðilögsögunnar í 200
mílur innan skamms.
Ráðamenn þjóðarinnar
hafa notað viðræðufundi
með fulltrúum erlendra
ríkisstjórna til þessa að
undanförnu en nú er ver-
ið að vinna ítarlega dag-
skrá fyrir þetta kynning-
arstarf og er sennilegt að
sérstökum fulltrúa ríkis-
stjórnarinnar verði falið
að ferðast milli höfuð-
borga þeirra þjóða, sem
helztra hagsmuna eiga að
gæta á íslandsmiðum, og
skýra fyrir þeim sjónar-
mið okkar í málinu.
Einar Ágústsson ákvað
loks að þiggja boð Sovét-
manna um opinbera
heimsókn til Moskvu en
það hefur staðið nú
í nokkur ár. Er þetta
gert til að friða Rússana,
sem hafa talið sig fara
halloka í viðleitni sinni
til að láta nokkurt jafn-
vægi ríkja í samskiptum
íslands og Sovétríkjanna
annars vegar og Banda-
ríkjanna og íslands
hins vegar. Þegar Sisco,
aðstoðarutanríkisráðherra
Bandaríkjanna kom hing-
að í heimsókn fyrir
nokkru, var fulltrúum
Sovétríkjanna nóg boðið
og fór sovézki sendiherr-
ann persónulega til fund-
ar við hinn bandaríska
starfsbróður sinn til að
tjá honum áhyggjur sín-
ar út af þessu og enn-
fremur kvartaði hann við
íslenzka utanríkisráðu-
neytið út af heimsókn
Siscos.
Sjálfstæðismenn á
fyrra þingi létu jafnan
sem þeir vildu Fram-
kvæmdastofnun ríkisins
feiga. Nú hefur annað
komið í ^jós og mun
stefnubreytmgin orsak-
ast af því, að sam-
starfsflokkurinn í ríkis-
stjórn vill ekki farga
þessu óskabarni sínu. Þá
vegur líka þungt, að
Framsóknarþingmaður-
inn Tómas Árnason vill
ekki missa stöðu fram-
kvæmdastjóra hjá stofn-
uninni. Þess vegna verða
lög stofnunarinnar nú
endurskoðuð og gerðar
einhverjar breytingar á
henni. Af hálfu þing-
flokks Sjálfstæðisflokks-
ins munu þeir Ingólfur
Jónsson og Sverrir Her-
mannsson hafa verið
kjörnir til að annast
þessa endurskoðun og
finnst mörgum því skrít-
ið að Ingólfur skuli nú
vera orðinn stjórnarfor-
maður Framkvæmda-
stofnunar og Sverrir for-
stjóri!
Dráttur varð á af-
greiðslu breytingar á lög-
um um útvarpsráð nú
fyrir jólin og því kennt
um að fjárlögin hefðu
tekið allan tíma þing-
manna og þeir því ekki
getað sett sig nægilega
vel inn í útvarpsmálin til
að ræða þau samhliða.
Þetta mun vera hluti af
skýringunni en aðalá-
stæðan ku þó sú, að í
þingliði Framsóknar-
flokksins var ágreiningur
um málið. Helztu for-
ystumenn Framsóknar
standa þó heils hugar að
breytingunni og ber þar
fyrstan að nefna for-
mann þingflokksins, Þór-
arin Þórarinsson enda
ætlar hann líka að verða
formaður útvarpsráðsins
nýja.
Flugleiðir og Air Vik-
ing heyja nú harða sam-
keppni á orlofsferðamark-
aðinum og kemur þetta
greinilega fram í auglýs-
ingum á Kanaríeyjaferð-
um. Air Viking annast
flutninga fyrir Álþýðuor-
lof, ferðaskrifstofu laun-
þegasamtakanna, og sýn-
ist mönnum sem skyld-
leiki þessara fyrirtækja
sé orðinn talsverður.
V erkalýðsf or ing j arnir
kunna vel við sig í ferða-
mennskunni og fóru 60
þeirra í boðsferð með Air
Viking til Kanaríeyja
fyrir nokkru.
FV 1 1975
7