Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1975, Page 34

Frjáls verslun - 01.01.1975, Page 34
aðar við skýrslu- og áætlana- gerð, m. a. hins opinbera og eru mjög mikilvægar í heim tilgangi. Lítið er um upplýs- ingasöfnun frá iðnaðinum, en vonandi verður bætt úr því í náinni framtíð. Umbúðasamkeppni. Annað hvert ár efnir félagið til umbúðasamkeppni. Berast þangað 50-60 umbúðir, sem teknar hafa verið í notkun undanfarin tvö ár. Dómnefnd skipuð 7 aðilum, sérfræðingum á sínu sviði, dæmdir síðan umbúðirnar og veitir viður- kenningar. Tilgangurinn er sá, að hvetja til hönnunar og framleiðslu betri og fallegri umbúða. Frá því að umbúða- samkeppnin var haldin fyrst, hafa orðið umtalsverðar fram- farir á þessu sviði. Telja kunn- ugir að umbúðasamkeppnin hafi átt þátt í þeim framför- um Hagtölur iðnaðarins. Félag íslenzkra iðnrekenda gefur árlega út bækling er nefnist „Hagtölur iðnaðarins“ er hefur að geyma margs kon- ar talnalegar upplýsingar um iðnaðinn, aðra atvinnuvegi og bjóðarbúið í heild. Er bækling- urinn í því formi að hentugt er að hafa hann á sér hvar sem er. Á síðasta ári var gerð sú nýbreytni að gefa einnig út vasadagatal og þótti það takast svo vel, að það hefur verið gefið út aftur í ár. Útfl’utningsmiðstöð iðnaðarins. Árið 1969 stofnaði F.Í.I. sér- staka útflutningsskrifstofu, sem síðan varð sjálfstæð stofn- un 1971. Hafa tengsl félagsins við Útflutningsmiðstöðina frá upphafi verið mikil enda á- vallt í sama húsnæði og hvers konar samvinna mjög góð. í stjórn Útflutningsmiðstöðvar- innar sitja tveir fulltrúar F.Í.I., beir Bjarni Björnsson, sem er formaður stjórnarinnar, og Davíð Seh. Thorsteinsson. Sýningarstörf. Félaginu er ljós nauðsyn á kynningu ísl. iðnvarnings hér- lendis og erlendis. Þess vegna hefur félagið tekið þátt í og staðið fyrir sýningum með því markmiði. Stærsta skrefið þar er eflaust Iðnkynningin sem haldin var 1968 í sam- vinnu við Landssamband iðn- aðarmanna. Síðan hefur félag- ið átt hluta af sýningaráhöld- um er hafa verið leigð út. Þá átti félagið mikinn þátt í stofn- un Vörusýningarnefndar árið 1956, sem stuðlar að sýningu á íslenzkum vörum erlendis. Formaður nefndarinnar hefur frá upphafi verið Gunnar J. Friðriksson, fyrrverandi for- maður F.Í.I. Iðngarðar. Fyrir hönd meðlima tók fé- lagið þátt í byggingu verk- smiðjuhúsnæðis, Iðngarða, við Skeifuna í Reykjavík. Varð sú ráðagerð eflaust lyftistöng fyr- ir ýmsa félagsmenn til þess að eignast húsnæði. Mun nú vera á döfinni að hefjast handa við annan áfanga Iðngarða. TÖLVUBÚKHALD VEITIR UPPLÝSINGAR Hvemig gengur tölvubókhaldið íyrir sig? 1. Á skrifstofu yðar fer fram fœrslumerking í sér- staka tölvudagbók. 2. Þér afhendið okkur aðeins frumrit tölvudagbókar, en engin fylgiskjöl. 3. Við götum fcerslurnar í gatastrimil, sem lesinn er inn d tölvu. Eftir 10-12 daga fáið þér í hendur bókhaldsútskrift og rekstrar- og efnahagsyfirlit. Tölvan vinnur hraðar og öruggar en maðurinn. Þessi tölvubókhaldsþjónusta er ódýr, en aðalkosturinn er að hin daglega bókhaldsvinna verður auðveldari og veitir stjómendum verðmœtar upplýsingar fyrr en áður. Við þjónum íyrirtœkjum um land allt. Veitum alla nauðsynlega aðstoð í byrjun. Hringið eða skriíið og biðjið um kYnningarbœkling. TÖLVÍS HF. HAFNARSTRÆTI 18, REYKJAVÍK. SÍMI 22-4-77. 34 FV 1 1975

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.