Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1975, Síða 73

Frjáls verslun - 01.01.1975, Síða 73
alla okkar starfsemi í 80 fer- metra leiguhúsnæði að Bol- holti 4, hjá ísleifi Jónssyni, kaupmanni. Hingað fluttum við í júlí 1973. Nú er matstof- an á 500 fermetra hæð og kjallari, fullkomið eldhús, mat- salur, er rúmar 140 manns í sæti í einu, frysti- og kæli- geymslur, og kjötvinnsla. Hér starfa 2 kokkar, auk 10 annarra starfsmanna. Hér borða venjulega um 200 manns í há- degi og rúmlega 100 matar- skammtar eru seldir til vinnu- staða víðs vegar um bæinn. Þannig þjónar matstofan fjölda mörgum vinnustöðum auk okkar, og er fyrirsjáanleg 30-40% aukning á rekstri hennar á næstunni. Til gam- ans má geta þess, að skrif- stofa fyrirtækisins er á 100 fermetra húsnæði, og þar er engin fyrirsjáanleg stækkun í bráð.“ Aukin umsvif Vörumarkaðarins hf.: Húsið stækkað um 1500 fermetra og vöruvalið aukið fafnhliða Umsvif Vörumarkaðarins h.f. við Ármúla, fara nú ört vaxandi og ef allt stenst áætlun, verður þar m.a. orðin ein stærsta matvöruverslun á landinu í lok þessa árs. Hafin er bygging 1500 fermetra við- byggingar norð-vestan við húsið og verður hún á tveim hæðum. Þegar hún hefur verið tekin í notkun verður matvöru- verslunin á þúsund fermeitra gólffleti og verður þá öll mat- vara fáanleg þar, svo sem kjöt, mjólk o.fl. sem ekki er þar á boðstólnum nú. Húsgagnadeild- in verður á 1250 fermetra gólf- fleti enda stendur til að fjölga þá vörutegundum jafnhliða. Þetta kom fram er FV átti viðtal við Ebeneser Ásgeirsson, forstjóra Vörumarkaðarins h.f., sem er hlutafélag hans, konu hans og þriggja barna þeirra. Eþeneser, sem er frá Önundar- firði, kom fyrst til Reykjavíkur 1949, en fékk þá enga vinnu og fór því vestur í Stykkishólm. 1952 kom hann aftur til Reykja- víkur og keypti fyrirtækið Hansa, sem útlendingur hafði rekið hér. Ebeneser jók umsvif fyrirtækisins að mun, og munu flestir þekkja Hansa glugga- tjöld, eða rimlatjöld, og Hansa hillurnar, margfrægu. Árið 1966 seldi hann svo Hansa og snéri sér að uppbygg- ingu Vörumarkaðarins h.f. Hann byggði húsið við Ármúla sjálfur upp og byrjaði að versla þar í markaðsformi á neðstu hæðinni, árið eftir. Þetta mark- aðsform er byggt á að selja í nokkurs konar pakkhússtíl, eða að brjóta vöruna ekki niður í smá einingar, og eyða ekki í dýrar innréttingar. Með þessu fyrirkomulagi segir Ebeneser að veltan verði mun hraðari og það atriði, auk tveggja áður talinna, þýði að unnt sé að bjóða lægra verð en almennt gerist. Til þess að fólk hefði í fleira að sækja en matvöru, stofnaði Ebeneser heimilisitækja-og hús- gagnadeild á annari hæð húss- ins árið 1968, og þar hefur hann leitast við að hafa á boðstólnum vörur, sem. ekki eru fáanlegar annarsstaðar. Ári síðar stofnaði hann svo deild fyrir vefnaðar- vörur, gjafavöru og sængur- fatnað á þriðju hæð hússins, en sjálfur býr hann á þeirri fjórðu. Með viðbyggingunni, sem fyrr er getið, verður húsið full byggt, en um leið fjölgar bíla- stæðum við það um 60. Verða þau norðan við húsið. Þegar Ebeneser fór út í þetta verslunarform, gerði hann það eftir eigin hugmynd en síðar kom í ljós að þetta verslunar- form hafði verið reynt erlendis með góðum árangri. Hann sagði að fólk kæmi aðallega í Vöru- markaðinn til að gera stærri innkaup og í seinni tíð væri mjög áberandi að fólk skoðaði mun nánar en áður og gerði verðsamanburð. Vörumarkað- urinn virtist þola verð saman- burðinn mjög vel, því veltan hefði tvöfaldast á síðasta ári miðað við árið 1973 og varð hún á fjórða hundrað milljóna í fyrra. Ebeneser Ásgeirsson, forstjóri Vörumarkaöarins h.f. FV 1 1975 73
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.