Frjáls verslun - 01.01.1975, Qupperneq 83
Bílaeign íslendinga:
IVIesta „jeppaþjóð”
■ Evrópu
„Ófært nema stórum bífum og jeppum“, heyrist
nær daglega í útvarpinu þessa dagana, þegar
verið er að segja frá ástandi vega. Það er því
ekki óeðlilegt að Islendingar eigi hlutfallslega
meira af svo nefndum jeppabílum, eða bílum
með drif á öllum hjólum, en nokkur önnur ná-
grannaþjóð. F.V. leitaði upplýsinga um jeppa á
markaðnum.
Jeep Renegade
Jeppi
jeppanna
Gamli góði jeppinn, eða
Jeep eins og hann heitir, er
nokkurs konar sameiningar-
tákn fyrir alla bíla í jeppa-
flokki, enda er orðið jeppi,
sem hér er almennt notað um
minni bíla með drifi á öllum
hjólum, dregið af nafni hans,
Jeep. Hann hefur verið nær
óbreyttur í útliti síðan 1955,
en þrátt fyrir það fara vin-
sældir hans síst dvínandi. Eg-
ill Vilhjálmsson hf., hefur um-
boð fyrir hann. Hann er fáan-
legur með þrem vélarstærðum,
sex strokka 232 rúmtommu,
sem skilar 100 NET hestöfl-
um, 258 rúmtommu, sem skil-
ar 110 NET hö. og átta
strokka 304 rúmtommu, sem
skilar 150 NET hö. Mest er hér
selt af honum með 232 rúm-
tommu vélinni og 90% allra
jeppanna kemur með blæjum.
Verð er 885 þús. með blæjum,
miðað við ’74 árgerð. f fyrra
var jeppinn aðeins lengdur, ör-
lítið breikkaður, auk fleiri smá
breytinga. Egill Vilhjálmsson
hf., flytur einnig inn Wagoneer
Custom, sem mest er selt af
hér, en fáanlegur með sömu
vélum og litli jeppinn, tveggja
eða fjögurra dyra og klæddur.
Vei-ð er frá 1280 þús. upp í
1450 þús., þá með öllum hugs-
anlegum aukahlutum. Hægt er
að fá einfaldari gerð á 1200
þús., en hann er þó með
vökvastýri. Þessi verð eru
miðuð við ‘74 árgerð, enda
eru bilar af þeirri árgerð til
enn, og reyndar af jeppanum
og Cherokee. Cherokee er
mjög sambærilegur bíll við
Wagoneer. Hann er fáanlegur
með fjórum vélarstærðum, en
algengast er að hann sé tek-
inn með sex strokka 258 rúm-
tommu vél, 110 NET hö.
Klæddur, m/vökvastýri, án
ryðvarnar, kostar hann 1220
þús., ‘74 árgerð. Sá dýrasti átta
strokka 360 rúmtommu, 175
hestafla, sjálfskiptur með
vökvastýri, aflhemla, læst
drif, quadra trac, kostar 1420
þús.
Dodge - jeppinn
kominn hingað
Tæpt ár er nú síðan hafin
var framleiðsla á Dodge tor-
færubílum í svipuðum flokki
eins og t. d. Blazer, og er
þessi bíll nú kominn á markað
hér. Vökull hf. við Ármúla
flytur hann inn. Þetta er fimm
til sjö manna bíll, eftir inn-
réttingu, með tvöföldu
styrktu stálhúsi og tveim hler-
um að aftan. Bíllinn kemur
hingað með átta strokka vél,
318 rúmtommur, vökvastýri,
aflhemlum, og fjögurra gíra
kassa eða sjálfskiptingu. Hann
er með læstu drifi á aftudhjól-
um, og svonefndum quadra
trac útbúnaði á drifum (fer
sjálfur í framdrif þegar þarf).
Hann kemur með 135 lítra
eldsneytisgeymum, styrktum
dempurum og fjöðrum, elekt-
rónískri kveikju, sem á að
gera hann gangvissari, og
og mengunarvarnartækjum, er
taka minni orku frá vélinni
en önnur þekkt mengunarvarn-
artæki. Beygjuradíus er aðeins
35,4 tommur. Bíll þessi hefur
hlotið góða dóma í erlendum
bíiablöðum bæði sem torfæru-
og hraðbrautarbíll. Verð er frá
1198 þúsundum upp í 1270
þúsund.
Dodge Ramcharger.
FV 1 1975
83