Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1976, Page 49

Frjáls verslun - 01.07.1976, Page 49
Spjall um íslenzk stjórnunarmál: Aldrei brýnna að nofa stjórnun- artækni en við erfiðar aðstæður í verðbólguþjóðfélagi Kennsla í stjórnun skammt á veg komin hérlendis en þarf að ná lengra niður í skólakerfið FRJÁLS VERZLUN fékk nýlega stjórnendur þri ggja stórfyrirtækja til þess að ræða Iítillega um stöðu stjórnunarmála hérlendis. Þessir menn hafa allir haft töluverð afskipti af stjórnunarfræðslu- málum hér á Iandi en þeir eru, Hörður Sigurgestsson, framkv.stj. hjá Flugleiðum, Sigurður Jó- hannsson, vegamálastj. og Ragnar Halldórsson, forsíj. ísal, sem jafnframt er núverandi formaður Stjórnunarfélags íslands. Umræðustjórar voruBergþór Konráðsson, rekstrarhagfr. og Jóhann Briem, framkv.stj. Sp.: Er hægt að meta það hvar íslendingar eru á vegi staddir á sviði stjórnunar miðað við nágrannaþjóðirnar? Hörður: Ef þú ert að spyrja um hvar við stöndum almennt miðað við önnur lönd held ég að það sé erfitt að finna ein- hvern einhlítan mælikvarða á það. Sá mælikvarði, sem mér dettur í hug að nota, væri helzt að bera saman hvernig menn beita stjórnunarþekkingu í fyr- ii’tækjum og stofnunum 'hér samanborið við önnur lönd, en í fræðslukerfinu á íslandi er stjórnun mjög lítið formlega sinnt. Sp.: Þú telur að stjórnunar- fræðslu í landinu sé ábótavant. Hörður: Það er að vísu stutt síðan að farið var að tala um stjórnun hér. Þegar Stjórnunar- félag íslands var stofnað 1961 var hugtakið í merkingunni að beita ákveðinni þekkingu til að bæta rekstur fyrirtækja og stofnania tiltölulega nýtt. Það hefur mikið áunnizt síð- an en það er líka ýmislegt eft- ir t. d. er enn mjög takmarkað hvað kennt er í stjórnun í framhaldsskólum. Ragnar: Ég er sammála þessu. Mér skilst að 'kennsla á þessu sviði í háskólanum hafi tekið miklum framförum á undanförnum árum en hún þarf að ná lengra niður í skóla- kerfið. Sp.: Hafa íslenzkar aðstæð- ur eins og stærð fyrirtækjanna ekki haft áhrif á stjórnun hér? Ragnar: Fyrirtækin hér eru mjög smá, sem er m. a. afleið- ing af. því að margir líta svo á, að aðaltilgangurinn með því að reka fyrirtæki sé að útvega eigandanum forstjórastöðu. Þetta er vafalaust lika tilkomið af skattalegum ástæðum eins og þeim er hér háttað. Þetta hefur hins vegar í för með sér að of miklu vinnuafli er beitt til að stjórna of litlum einingum. Þar sem einingarnar hérlendis hafa náð sæmilegri stærð er stjórnun í mjög þokka- legu lagi og ég efast um að Norðurlönd standi okkur þar nokkuð framar. Sigurður: Hvað opinber fyr- irtæki snertir þekki ég eðlilega bezt til Vegagerðarinnar og hvernig vegagerðir á Norður- löndum reka sín fyrirtæki. Hvað fjárhagslegt bókhald og upplýsinigastreymi viðkemur held ég að þetta sé ekki orðið mjög frábrugðið. Við erum komnir með tölvubókhald og fáum um tuttugasta hvers mán- aðar yfirlit yfir alla eyðslu í framkvæmdum og rekstri. Auðvitað eru okkar vegir FV 7 1976 49

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.