Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1976, Side 50

Frjáls verslun - 01.07.1976, Side 50
Við umræð.uborð: Bergþór Konráðsson rekstrarhagfræðingur, Ragnar Halldórsson, forstjóri ísals, Jóhann Briem framkvæmdastjóri, Hörður Sigurgestsson, framkvæmdastjóri hjá Flugleiðum, og Sigurður Jóhannsson vegamálastjóri. ekki jafngóðir og þeirra, en það er önnur saga. Hin stjórnunarlega hlið er ekki mjög frábrugðin. Við erum búnir að dreifa miklu af okkar tækni- og bók- haldsstarfsemi út í umdæmin. Þar eru skrifstofur sem stjórna öllum daglegum framkvæmdum og það eru aðeins meiriháttar ákvarðanir sem teknar eru í Reykjavík. Upplýsingarnar koma mánaðarlega frá þessum aðilum, þeim er safnað saman hér í Reykjavík og við getum fljótlega kippt í spottann ef eitthvað ætlar að ganga úrskeið- is. Sp.: Finnst ykkur ekki hafa gengið illa að ná fram samein- ingu og aukinni samvinnu fyrir- tækja hérlendis? Ragnar: Það er ekki einungis erfitt að sameina fyrirtæki, heldur er reynslan fremur sú að fyrirtækjum sem ganga sæmi- lega er skint upp svo að eigend- ur geti orðið forstjórar sinn í hvoru fyrirtækinu. Þannig nýt- ist hins vegar oft bæði starfslið og húsnæði ver sem bitnar á arðseminni. Hörður: Kemur þetta ekki líka til af því að menn setja ekki arðsemiskvarða á hlutina. Ef menn hefðu hann skýrðist betur fyrir þeim að þeir eru að leika sér með fyrirtækjarekst- ur, sem e. t. v. er ekki arðbær fyrir þjóðfélagið í heild. Sp.: Hefur sameining flugfé- Iaganna styrkt samkeppnisað- stöðu þeirra? Hörður: Það er ekki nokkur vafi á því að minu áliti og það kemur fram i því hvernig rekstrarstöðu flugfélaganna hefur verið snúið við nú á tveim árum. Sameining getur verið skynsamleg þar sem smáfyrir- tæki eiga í samkeppni við stórfyrirtæki á alþjóðamarkaði, en ýmis rekstur hlýtur að halda áfram að vera í smáu formi. Það er enginn vafi á því að það er rétt sem Ragnar segir, það er betur hægt að nýta stjórnunar- þekkingu í stærri fyrirtækjum enda hefur stjórnunartæknin þróazt þar, en það er samt sem áður ástæða til að benda á að mörgu af því sem við þekkjum í stjórnunartækni má líka beita með árangri í minni fyrirtækj- um. Sp.: Er minna um það að lítil fyrirtæki sæki námskeið Stjórn- unarfélagsins? Hörður; Það held ég ekki, en eftir því sem ég kynntist þessu var afar fátítt að það væri nokk- ur sem kæmi nálægt sjávarút- vegi eða fiskiðnaði- eni iðnaður, þjónustufyrirtæki og verzlun hafa haft áhuga á þessu, svo og ríkisfyrirtæki. Sp.: Oft er talað um að arð- semissjónarmiðið sé of sjaldan látið sitja í fyrirrúmi og sér- staklega þó þegar opinberar framkvæmdir eiga í hlut? Sigurður: Jú, það er rétt. Um þetta he-fur verið rætt í mörg ár. Þegar við fengum lán hjá Alþjóðabankanum á sínum tíma var markmiðið sett við 10% arðsemi. Þegar þetta var endurreiknað af bankanum eft- ir á kom í ljós að þetta stóðst þrátt fyrir magnbreytingar og verðbreytingar á framkvæmda- tímanum, eins og alltaf vill verða. Þegar við reiknum út arðsemi af fjárfestingu í fá- förnum vegum komum við hins vegar kannski út með arðsemi sem er 1% eða minna. Meiri- hlutinn af allri okkar fjárfest- ingu í vegamálum er með sára- litla arðsemi, en þessar fram- kvæmdir -eru nauðsynlegar af félagslegum orsökum. Ragnar: Hvað varðar opin- berar framkvæmdir er póli- tíkin oft alveg látin ráða eins og skóladæmið um skuttogara- kaupin sýnir. Á ráðstefnu sem Stjórnunarfélgið hélt í vor kom fram það álit þorra mamna að togaraflotinn væri allt að 50 FV 7 1976

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.