Frjáls verslun - 01.07.1976, Síða 57
*
Ltvegsmál:
„Langbezta sumar-
vertíð sem ég man
eftir“
— sagði Erling Pétursson, skipstjóri
í samtali við Frjálsa verzlun
Þegar blaðamaður FV var á ferð í Eyj,um um miðjan júlí-
mánuð vakti athygli hans hve mikil vinna var í frystihúsunum
en bar var unnið öll kvöld til kl. 10, enda mokfiskirí hjá troll-
bátunum. Surtsey VE2 kom með 50 tonn af bolfiski sem fengist
hafði á þrem sólarhringum á Víkinni eins og skipstjórinn Erling
Pétursson kallaði miðin fyrir utan Vík í Mýrdal.
Einn
bátanna
ætlaði
að fara
á net
og voru
skip-
verjar
að undir-
búa sig
áður en
haldið
yrði úr
höfn.
— Möguleikar fyrir ein-
staklinga til að byggja upp eru
miklir. Búið er að gera al'lt
vesturhverfið byggingarhæft.
Lagningu vatns- og holræsa og
undirbyggingu gatna er lokið.
1 öllu þessu hverfi er reiknað
með 660 íbúðum. Lokið er við
að úthluta meirihlutanum af
einbýlishúsalóðunum en þær
eru um 130. Hingað og þangað
um bæinn hefur svo verið
prjónað við.
Skipulagssamkeppninni sem
minnst var á í FV þegar blaðið
var síðast á ferð í Eyjum hefur
seinikað um hálft ár og eru út-
boðsgögnin nú tilbúin til út-
sendingar.
Hitaveitu-, rafmagns- og vatns-
veitumál.
í vesturhverfinu er lokið við
að tengja inn fjarhitun í þau
hús sem flutt er í. Einnig er
meirihluti aðalæða að viðbættri
tengingu í íþróttamiðstöðina og
Elliheimilið tilbúinn.
1 austurbænum er lokið við
að tengja hraunhitaveituna,
sem er tilraunahitaveita, við
sjúkrahúsið og verið er að
tengja 30 íbúðarhús. Næsti
áfangi í þeim málum er að sam-
tengja hraunhitaveituna við
vesturbæjar fjarhitunina ef ár-
angur verður jákvæður eins og
flestir reikna með.
— í áætlun kostar fjarhitun-
in í bæinn um 750 milljónir og
eru þá reiknaðir með í þessari
upphæð þeir varmaskiptar sem
notaðir verða í hrauninu, sagði
Páll.
— Þessi hitaveita verður dýr-
ari fyrir bæjarbúa, en þá sem
hafa heitt vatn, en um 60—
70% ódýrari en olíuverð. Efri
hluti bæjarins er hitaður upp
með rafhitun, en þegar allt er
komið af stað verður reiknað
með að nota verðjöfnun, þar
sem dýrara er að hita með
rafhitun.
Fyrir gos var Rafveita Vest-
mannaeyja skuldlaust fyrir-
tæki. Nú er áætlað að hún þurfi
340 milljónir til að byggja sig
upp í sama horf.
Vatnsveitan áætlar að byggja
vatnstank nr. 2 sem miðlunar-
tank fyrir efri hverfi bæjarins.
Erling sagði þetta lang bestu
sumarvertíð sem hann myndi
eftir og fleiri skipstjórar tóku
undir þessi orð.
Aflinn sem berst að landi
saman stendur af ýsu, ufsa og
iþorski, allt mjög stór fiskur.
Það eru ekki allir skipstjórar
í Eyjum hressir þessa dagana
þó góð veiði sé.
Aðgerðir Fiskveiðilaganefndar.
Ástæðan er sú að Fiskveiði-
laganefnd hefur fært alla báta
sem eru stærri en 105 tonn út
fyrir grunnlínu sem dregin er
úr Kötlutanga í Lundadrang og
þaðan í vatnsveituhúsið uppi á
landi. Þarna missa þessir bátar
um 1 mílu af aðalveiðisvæðinu
og um 2 V2 mílu við Ingólfs-
höfða, þar sem eins hefur verið
farið að.
Sigurjón Óskarsson skipstjóri
á Þórunni Sveinsdóttur VE 401
var að vonurn mjög óhress en
hans bátur mæ-list 124 tonn
samkvæmt nýju mælingaregl-
unum.
— Ég get ekki sagt að við
þessar breytingar hafi fisk-
FV 7 1976
57