Frjáls verslun - 01.07.1976, Blaðsíða 61
Ferðainenn skoða hraunið þar sem hað mælist hvað heitast næst
yfirborðinu.
um og í sumar reiknum við
með 25% aukningu, sögðu þeir
bræður, Birgir Viðar og Kon-
ráð Viðar hóteleigendur.
— Við erum þeir einu sem
sjáum um skoðunarferðir um
Heimaey.
Hótelið hefur opnað minja-
gripaverslun, sem nýtur mik-
illa vinsælda og einnig vinna
þeir bræður að stöðugum end-
urbótum á húsnæðinu.
— Gisting hefur verið lítil
það sem af er þessu ári og telj-
um við að þar spili veðrátta
inn í, en nú eftir að Herjólfur
kom höfum við strax orðið var-
ir við aukningu.
— Við höfum rætt það við
ferðamálanefnd að varðveitt
verði eitt eða tvö hús og
ákveðnir staðir þar sem fólk
getur séð hvernig húsin voru
útleikin og einnig að sýnd
verði kvikmynd um gosið í fé-
lagsheimilinu einu sinni á dag.
— Þá er nýkominn út bækl-
ingur, sem nefndin stendur að
í samráði við hótelið og FÍ til
leiðbeininga og upplýsinga fyr-
ir ferðamenn. Hótelið mun
senda hann hvert sem óskað er.
Að lokum vildu þeir bræður
minna á að í Eyjum er rómuð
aðstaða fyrir fuglaskoðara, fjall-
göngugarpa, golfspilara og sjó-
stangaveiðimenn.
GÍFURLEG BREYTING
TIL BATNAÐAR
— Við eigum við byrjunar-
örðugleika að stríða, sagði
Friðrik Óskarssón, fram-
kvæmdastjóri Herjólfs.
— Aðstaðan í Þorlákshöfn
er ekki tilbúin, en ef svo væri
myndi þetta ganga eins og í
sögu.
— Ég get lítið sagt um þetta
ennþá, því ekki er liðin nema
vika frá því að fyrsta ferðin
var farin og lítil reynsla kom-
in á hlutina. Við getum fliutt
40-50 bíla ef engar vörur eru.
Svefnaðstaða er fyrir 34 far-
þega, en alls er hægt að flytja
um 400 manns.
Við reiknum með að vörur
verði fluttar í sérstökum flutn-
ingavögnum og mjólkin í kæli-
vögnum. Við erum með aðstöðu
i Reykjavík hjá góðum manm
í Matkaup, Vatnagörðum 6, og
hefur það reynst okkur óskap-
lega vel.
Friðrik sagði að ef þetta skip
kæmi ekki til að auka ferða-
mannastraum til Eyja þá gerði
ekkert það.
GOSMINJASAFN
Að lokum hafði FV samband
við Pál Zophoníasson bæjar-
stjóra og spurði hann, hvað
bæjaryfirvöld hygðust fyrir í
sambandi við varðveislu gos-
minja.
— Vissar fáar rústir fá að
standa, en hversu lengi er óvíst.
Reiknað er með að eitthvað
verði skilið eftir til að hægt
verði að hafa nasasjón af því
sem skeði. Hugmyndin er að
sett verði upp sérstök deild í
byggðasafninu, gosminjasafn
með myndum, minjum og skýr-
ingum.
Nýi Herjólfur kemur öslandi að innsiglingunni í Vestmannaeyj-
um. Farþegar standa framá og virða fyrir sér verksummerki nátt-
úruhamfaranna.
FV 7 1976
61