Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1976, Page 81

Frjáls verslun - 01.07.1976, Page 81
Ofnasmiðja iVorðurlands Skipt um ofna í mörgum húsum með tilkomu hitaveitu á Akureyri Fyrirtækið stofnað fyrir fimm árum og þar heldur kona um stjórnvölinn — Um leið og holan við Syðra-Laugaland sýndi jákvæðan árangur jóksi mjög salan í ofnum, sem henta til hitaveitu, en Ofnasmiðja Norðurlands hf. framleiðir slíka ofna. Þetta sagði Guðrún Einars- dóttir, forstjóri Ofnasmiðju Norðurlands, þegar Frjáls verslun heimsótti fyrirtæki hennar fyrir skömmu. Ofnarnir, sem fyrirtækið framleiðir eru úr 1.5—2 mm stáli og eru með sérstökum lok- um, sem ætlað er það hlutverk að gera nýtingu heita vatnsins sem besta. Rörin sem ofnarnir eru fram- leiddir úr eru keyptir hjá Kos an Simplex A/S í Kaupmanna- höfn og hafa þau reynst vel, enda er stálið í þeim mjög þykkt miðað við það sem tíðk- ast við framleiðslu ofna hér- lendis. Guðrún var inrit eftir því hvort ekki biðu stór verkefni þegar kæmi að því að Akur- eyringar þyrftu að fara að skipta um ofna hjá sér vegna hitaveitunnar. Hún kvaðst vona að svo væri, en á þessu stigi málsins væri ómögulegt fyrir hana að spá nokkru um hve stór verkefnin yrðu og hve hratt þau kæmu. Það færi eftir svo mörgu, svo sem framleiðslu- hraða við gerð hitaveitunnar og hve margir húseigendur skiptu um ofna. Guðrún Einarsdóttir, forstjóri Ofnasmiðju Norðurlands, í verk- smiðjusal fyrirtækis síns. SKIPT UM OFNA — Það er ljóst að allir, sem eru með rafmagnsofna nú og ætla að fara yfir í hitaveitu þegar hún kemur, þurfa að skipta um ofna, þeir sem nú eru með olíukyndingu þurfa margir hverjir einnig að skipta um ofna. Ofnar í húsum með olíu- kyndingu eru flestir hverjir of litlir. Að vísu væri hægt að nota þá, en miklu betri nýting fæst á heita vatninu ef ofnarn- ir eru hannaðir fyrir hitaveitu og því eru ofnaskiptiw fljót að borga sig fjárhagslega, sagði Guðrún. Því næst var Guðrún að því spurð, hvort hún gæti giskað á hve mikill kostnaður það yrði fyrir húseigendur að skipta frá rafmagns- og olíukyndingum, sem flestir búa við á Akureyri og yfir í hitaveitu. Hún sagði að kostnaður yrði mjög mis- jafn og ómögulegt að gefa upp nokkrar ákveðnar tölur í því sambandi. Það væri verkfræð- inga og tæknfræðinga að segja til um það í hverju einstöku tilfelli hve stóra ofna þarf í hverja íbúð eða einbýlishús. Einnig skipti máli einangrun húsanna hvað viðkæmi stærð ofna og margt fleira hefur áhrif á þetta. UNGT FYRIRTÆKI Ofnasmiðja Norðurlands er ungt fyrirtæki. Það var stofnað í byrjun árs 1971 og er mark- mið félagsins að framleiða Runtal ofna, sem í dag eru framleiddir undir merkinu O.N.A. ofnar. Fyrirtækið er i 400 fermetra húsnæði við Kald- baksgötu á Akureyri og hefur vegnað vel það sem af er. Til merkis um það er að starfs- menn voru 5 í byrjun en eru nú 10 talsins. FV 7 1976 81

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.