Frjáls verslun - 01.03.1977, Side 16
Um 900 þús. manns fluttust
milli Norðurlanda í atvinnu-
leit sl. 22 ár
Sameiginlegi norræni vinnumarkaðurinn langmesf
notaður af finnsku verkafólki
Um þessar mundir er minnzt 25 ára afmælis Norðurlandaráðs. Á þessu árabili hefur samstarf
Norðurlandanna orðið víðtækt og öflugt þannig að þeir eru nú fáir málaflokkamir í þjóðfélags-
umræðunum eða hagsmunir einstakra hópa, sem ekki er fjallað um samciginlega á Norðurlandavett-
vangi. Einn þáttur norræns samstarfs er hinn sameiginlegi norræni vinnumarkaður, sem ísland
er þó ekki beinn aðili að en nýtur þess frjálslyndis. sem ríkir um flutning vinnuafls milli landa
hjá hinum aðildarríkjum Norðurlandaráðs. Um þessi mál er fjallað í eftirfarandi grein, sem nýlega
birtist í tímariti Fríverzlunarbandalags Evrópu.
Eftirlit á
Iandamærum
Norðurlanda
er forms-
atriði.
Frjálsar
ferðir manna
á milli er.u
sjálfsagðar
— líka í
atvinnuleit.
Hreyfanleikinn er eitt af
höfuðeinkeninum nútímasamfé-
lags. Fólk flyzt milli landshluta
eða landa í milli. Það breytir
um stöðu eða starf og oft líka
um þrep í þjóðfélagsstiganum.
Hinir ýmsu þættir hreyfanleik-
ans eru oft samofnir, sérstak-
lega breyting á búsetu og
breyting á atvinnu. Þar af leið-
andi er það ekki undravert þó
að athygli stjórnmálamanna
hafi á síðari árum beinzt æ
meir að vaxandi flutningum
fólks milli landa.
# Aðallega
Svíþjóð — Finnland
f Vestur-Evrópu hafa flutn-
ingar vinnuafls milli ríkja ver-
ið mjög miklir á tveim síðustu
áratugum. Streymið hefur ver-
ið frá löndunum í suðri til mið-
biks meginlandsins, milli landa
í Efnahagsbandalagi Evrópu og
á milli Norðurlandanna, sem
eru aðilar að Fríverzlunar-
bandalagi Evrópu að Danmörku
undanskilinni. Flutningar milli
Norðurlandanna snerta nú aðal-
lega Finnland, hvað flutning
manna úr landi snertir en Sví-
þjóð að því er innflutning fólks
varðar. Áhrifa verður líka vart
að einhverju leyti í Danmörku
og No.regi. Þess má líka minn-
ast í þessu sambandi að flutn-
ingar milli héraða innanlands
eru fyrirbæri, sem vega þungt
á Norðurlöndum, bæði efna-
hagslega og félagslega.
í maímánuði árið 1954 gerðu
ríkisstjórnir Danmerkur, Finn-
lands, Noregs og Svíþjóðar með
sér samning um stofnun hins
sameiginlega norræna vinnu-
markaðar, sem tók síðan gildi
16
FV 3 1977