Frjáls verslun - 01.03.1977, Síða 19
Finnskar verkakonur, sem starfa í stáliðjuveri í Mið-Svíþjóð.
0 íbúafækkun í sum-
um byggðarlögum
I Finnlandi heíur flutningur
fólks úr landi ásamt með 'hreyf-
inigu fólks milli héraða heima
fyrir, úr no.rðri til suðurs, haít
i för með sér íbúafsekkun í
sumum byggðarlögum. Þar eð
útflytjendurnir eru aðallega
fremur ungt fólk, hefur ald-
ursskipting hjá launþegunum
raskazt mjög í sumum lands-
hlutum.
Flutningur vinnuafls frá
Danmörku til Svíþjóðar og frá
Svíþjóð til Danmerkur nemur
um 9% í hvora átt miðað við
heildarflutninga milli Norður-
landanna. Á árunum 1961—
1970 fluttu um 27.700 manns
frá Danmörku til Svíþjóðar. í
byrjun þessa áratugar var
þróunin í flutningum milli
þessara landa Danmörku í vil
að því er nam um 1000 manns
á ári. Árin 1974 og 1975 jukust
svo flutiningar frá Danmörku
til Svíþjóðar aftur mjög, þann-
ig að fyrra árið fluttu 5.000
fleiri frá Danmörku til Sví-
þjóðar en þaðan til Danmerkur
og 7.000 seinna árið.
í höfuðdráttum hafa flutn-
ingarnir milli Svíþjóðar og
Noregs verið eins. Á síðasta
áratug fór 800 manns fleira frá
Noregi árlega til Svíþjóðar en
í hina áttina. Árin 1971 til 1973
jókst hins vegar flutningur
fólks til Noregs þannig að í
heild voru flutningarnir Norð-
mönnum í hag þessi þrjú ár.
En síðan 1974 hefur streymi frá
Noregi til Svíþjóðar aukizt aft-
ur og orðið meira en í hina átt-
ina.
0 Overulegur flutning-
ur milli landanna
Vinnuaflsflutningurinn milli
Finnlands annars vegar og
Danmerkur og Noregs hins
vegar hefur verið mjög óveru-
legur. Frá Finnlandi hafa kom-
ið til þessara landa liðlega 100
manns fleira en farið hafa til
Finnlands. Síðan 1974 hefur þó
orðið vart greinilegra breyt-
inga á þessu. Flutningur milli
íslands og hinna Norðurland-
anna er líka afar lítill.
Ai því, sem talið er hér að
framan, má ljóst vera, að siðan
stofnað vaa- til hins sameigin-
lega norræna vinnumarkaðar,
hefur straumurinn fyrst og
fremst legið frá Finnlandi til
Svíþjóðar og til baka. Frá
haustinu 1974 hefur aftur á
móti víðtækt atvinnuleysi í
Danmörku stuðlað nokkuð að
flutningi Dana til Svíþjóðar og
breytt þar með myndinni, sem
hér hefur verið lýst. Peninga-
sendingar frá útflytjendum
hafa lítil áhrif haft á greiðslu-
jöfnuð milli Norðurlandanna.
Árið 1975 námu þær lijá Finn-
um aðeins 0,5% af gjaldeyris-
tekjum iþjóðarinnar og raun-
veruleg áhrif af þeim eru enn
minni þegar með er reiknuð
yfirfærsla á gjaldeyri frá Finn-
landi til einstaklinga í Svíþjóð,
en hún nemur um þriðjungi
þess sem inn í landið kemur af
gjaldeyri frá Svíþjóð.
0 Sérstæð vandamál
Önnur fólagsleg og efnahags-
leg vandamál má þó rekja til
fólksflutninganna frá Finn-
landi til Svíþjóðar. Ekkert
land í Evrópu hefur misst jafn
marga íbúa úr landi vegna
hreyfinga viinmuafls og einmitt
Finnland. Flutningarnir innan
Norðurlanda hafa sömu ein-
kenni að mörgu leyti og hið
hefðbundna streymi vinnuafls
milli ríkja sunnar í álfumni, en
þó er yfirbragðið nokkuð öðru
vísi á vissum sviðum. Á Norð-
urlöndum eiga mestan hlut að
máli verkamenn sem eru annað
hvort faglærðir eða verða auð-
veldlega þjálfaðir af því að
þeir hafa áður notið góðrar
undirstöðumenntunar. Þeir
hafa reynzt Svíum notadrjúg
viðbót við sérhæfðan vinnu-
kraft þeirra, en spumingar
hafa vaknað um hve vel þeim
hafi gengið að falla inn í
sænkt samfélag, sem þeir búa í.
Oft er um tungumálaenfiðleika
að ræða. Þar af leiðandi er töl-
uð aðallega finnska í bekkjar-
deildum í sumum skólum og
sænsk blöð birta sérstaka
fréttadálka á finnsku auk þess
sem finnskar dagskrár eru
fluttar í sænsku útvarpi og
sjónvarpi.
Ólikt því sem gerist í öðrum
Evrópulöndum, sem séð hafa á
bak verkafólki sínu í miklum
mæli, þurfa Finnar á næstum
öllu útflutta vinnuaflinu að
halda sjálfir heima fyrir. Brott-
flutningur Finna til Svíþjóðar
hefur ekki lagað nein af vanda-
málum finnska vinnumarkað-
arins heldur þvert á móti búið
til nokkur ný. Hann hefur
valdið enn alvarlegri skorti á
sérhæfðu vinnuafli í Finnlandi,
sem verið hefur ríkjandi síðan
hraðfara iðnvæðing hófst í
landinu.
FV 3 1977
19