Frjáls verslun - 01.03.1977, Qupperneq 20
Sovétríkin
Hvað kaupa þau og selja í
viðskiptum sínum við útlönd?
Grein eftir K. Barykin, fréttamann APIM.
Háhýsið við Smolenskaja-torgið í Moskvu er aðalbygging Utanríkisviðskiptaráðuneytis Sovétríkj-
anna, öðru nafni Vnestorg. En Vnestorg hefur víðar aðsetur en þar. Ráðuneytið rekur skrifstofur
í mörgum hverfum Moskvuborgar, það hefur fulltrúa í höfuðborgum allra sovétlýðveldanna og
hundruð verslunarfulltrúa erlendis. Tollþjónustan heyrir einnig undir ráðuneytið og sömuleiðis
ríkiseftirlit með gæðum útflutningsvara. Þá hefur Vnestorg einnig náið samstarf við crlcnda versl-
unarfulltrúa sem hafa skrifstofur í Sovétríkjun-um.
Utanríkisviðskipti eru mikil-
væg grein sovésks þjóðarbú-
skapar. Á síðustu tíu árum hef-
ur heildarupphæð sovéskra ut-
anríkisviðskipta þrefaldast og
nam árið 1975 50,7 milljörðum
rúblna.
Sovétmenn eiga nú viðskipti
við 115 riki heims. Á fyrri
helmingi ársins 1976 námu
þessi viðskipti 28,4 milljörðum
rúblna. Á degi hverjum fram-
kvæma sovésk fyrirtæki mikið
magn viðskiptaathafna. Veltan
nemur u.þ.b. einum miljarði á
viku.
# Helztu útflutnings-
fyrirtæki
Fyrirtækið „Sojuskemexport"
sem verslar með framleiðslu-
vörur efnaiðnaðarins, gerir
u.þ.b. 4000 viðskiptasamninga
árlega. „Avtoexport“ flytur út
450 gerðir af bílum og vélum.
„Energomashexport“ flytur út
3000—4000 hestafla dísileim-
reiðar til margra landa.
„Traktoroexport“ hefur versl-
unarsamskipti við nær 80 lönd.
í þessum löndum eru nú 400
þúsund sovéskar dráttarvélar,
70 þúsund kornskurðarvélar og
yfir 40 þúsund vegavinnuvélar.
„Súdoimport“ býður kaupend-
um til sölu skip til siglinga a
ám og höfum, hraðbáta, flutn-
ingaskip, tankskip, fljótandi
skipakvíar og frystitogara.
„Mashinoexport" selur skurð-
gröfur, borvélar og tækjabúnað
fyrir málmiðnaðimn, Útflutn-
ingur þessa fyrirtækis er mikil-
vægur og þungur á metunum.
„Mashinoexport" er eitt helsta
útflutningsfyrirtæki sovéska
vélaiðnaðrins. Yfir 500 fyrir-
tæki í Sovétrikjunum franr
leiða fyrir það vélar sem flutt-
ar eru út til 70 landa.
Á fimm árum voru 13 þús-
und skurðgröfur seldar úr
landi, 5 þúsund kranar og
hundruð steinbrjóta. írak
keypti 25 borvélar. Þekkt
fininekt fyrirtæki, „Vaartsilaa"
keypti stóran stálsmiðjubekk.
Júrgen Essing frá Vestur-
Berlín er heildsali og verslar
með loftbora. Það eru tæki sem
Sovézka
bifreiðin
Lada á
bílamarkaði
í Túnis.
20
FV 3 1977