Frjáls verslun - 01.03.1977, Síða 25
leyti vegna minni fjárfestinga í
iðnaðarlönduinium. Samtímis
jókst eftirspurn eftir lánsfé frá
löndum sem þurftu að fjár-
magna óhagstæðain viðskipta-
jöfnuð eða greiða af eldri lán-
um.
Lánstími ihefur lengst. Tíu
ára skuldabréf e.ru nú algeng-
ari í stað 7—8 ára áður og lán
milli ban'ka hafa lengst úr 5
árum í 7 ár. Vextir hafa jafn-
framt lækkað upp á síðkastið
og er jafnvel talið að lágmarki
sé náð og þeir muni ihækka aft-
ur síðar á þessu ári. Vextir af
verðbréfalánum til 7—10 ára
munu vera 7 V2—9% um þessar
mundir eftir trausti lántak-
anida, en um 1 % lægri á lánum
í vestur-þýskum mörkum og
ekki nema 5—6% af lánum í
svissneskum frönkum. Vaxta-
munur af þessu tagi stafar hins
vegar af því að búist er við
gengishækkun vestur-þýska
marksins og svissneska frank-
ans sem þurrkaði út mismun-
inn þ.e.a.s. lántakendur meta
hættuna á genigisbreytingu á
þennan veg og að þessu marki.
Þess vegna verður að telja að
það lán sem tekið var af ís-
lands ihálfu í vestur-þýskum
mörkum nýlega hafi verið tek-
ið, á „réttum tíma“, þótt vafa-
samur ábati sé af því að taka
lán í vestur-þýskum mörkum
fremur en dollurum, ef gengi
ma.rksins hækkar.
HVERT STEFNIR?
Enda þótt erlend lán hafi enn
aukist síðustu ár hefur halli á
utanríkisviðskiptum stórlega
miinnkað og það jafnvel hraðar
en vonir stóðu til. Það virðist
þó gleymast í kröfugerðinni að
hallanum hefur enn ekki verið
útrýmt, hvað þá fyrri skulda-
kúfur minnkaður. Það vekur
óhug, að enn ein kollsteypan
virðist í uppsiglingu áður en
tekist hefur að grynnka á
skuldunum. Hvaða máli skipt-
ir það?
Jú, athafniafrelsið verður tak-
markað, gengisfellingar óum-
flýjanlegar, freistingar til
haftastefnu á öllum sviðum
meiri og útilokað að auka
frelsi í gjaldeyrisviðskiptum og
f jármagnsflutningi og þannig
mætti áfram telja. Það er því
miður staðreynd að með áfram-
haldandi óðaverðbólgu er tómt
mál að tala um aukið frelsi á
ýmsum sviðum. íslenskir hag-
fræðingar hafa flutt út þá
kenningu að íslendiinigar hafi
lært á verðbólguna og ekkert
bendi til þess að hún standi
frjálsu þjóðfélagi fyrir þrifum.
Þetta er rétt að því leyti sem
ekkert bendir til þess að þjóð-
félagsupplausn eða dómsdagur
sé í nánd. En við höfum með
eigin athöfnum skert svigrúm-
ið til ákvarðana í efnahagsmál-
um. Við höfurn vanist alls kyns
höftuim og erum að því leyti
efcki f.rjálsir gerða okkar.
ERIIM
í nýtt húsnæði við
Strandgötuna
Opið alla daga kl. 9.30 — 12.30 og
13.00 — 16.00 nema laugardaga.
Ennfremur á föstudögum kl.17.30 —18.30
Nýtt símanúmer:
5-39-33
Samvinnubankinn
STRANDGÖTU 33, HAFNARFIRÐI SÍMI 53933
FV 3 1977
25