Frjáls verslun - 01.03.1977, Blaðsíða 50
Samtíiarmaður
Björn Þórhallsson, formaður LÍV, um samningamálin:
„Bezta lausnin er talsverð
hækkun á kaupi hinna lægst-
launuðu en hækkun skattleysis-
marka fyrir aðra”
Björn Þórhallsson, viðskiptafræðingur, er formaður Landssambands íslanzkra verzlunarmanna.
Sem fulltrúi þessara fjölmennu launþegasamta ka hefur Björn setið í miðstjórn Alþýðusambands
íslands og var endurkjörinn til þess á ASÍ-þingi sem haldið var í vetur. Hann hefur gegnt ýmsum
öðrum trúnaðarstörfum fyrir verkalýðshreyfinguna. Við ræddum nýverið við Bjöm Þórhallsson
um yfirvofandi átök á vinjnumarkaðinum og spurðum fyrst um hættuna á verkföllum í maí.
Björn: — Samningar flestra
félagsmanna innan ASÍ renna
út fyrsta maí en samningar
sjómanna 15. maí. Ef málum
hefur ekki miðað áfram getur
alvara færzt í þetta tiltölulega
snemma i maí, er ég hræddur
um.
Mér finnst hins vegar tal um
verkfall vera alltof mikið, bæði
í fjölmiðlum og hjá öðrum að-
ilum. „Verður verkfall?“,
„Hvenær verður verkfall?“,
spyrja menn, „verður það
langt?“ og svo framvegis. Ég
held, að þetta beri vott um
rangt huga.rfar. Það er farið úð
tala um verkfall eins og sjálf-
sagðan hlut. Ef til vill er það
vegnia þess að til verkfalla hef-
ur dregið undamfarið við svo til
hverja samninga. Mér finnst
það mjög slæmt að talað sé um
þetta sem sjálfsagðan hlut og
ég tel, að umræðan í sjálfu sér
geti örvað til þess að verkföll
verði.
Stundum er sagt, að báðir
aðilar þurfi á verkföllum að
halda til að sanna fyrir sjálfum
sér og öðrum, að þeir hafi bar-
Björn Þór-
hallsson,
hefur átt
sæti
í stjórn
Landssam-
bands
ísl. verzl-
unarmanna
í 20 ár.
Nú eru
starfandi
22 verzlun-
armanna-
félög
víðs vegar
um landið.
50
FV 3 1977