Frjáls verslun - 01.03.1977, Síða 83
Smíðastofa
Sverris Hallgrímssonar
Stuðla-skilrúm er ein helsta
franileiðslan á smíðastofu
Sverris Hallgríinssonar, Trönu-
hrauni 5. Stuðla-skilrúm er
léttur veggur, sem samanstend-
ur af stuðlum, hillum og skáp-
um. Nota má Stuðla-skilrúm
þar sem skipta þarf stórum
herhergjum eða skilja á milli
stórra herbergja án þess að
nota fasta veggi, en einnig
hentar það vel upp við vegg.
Stuðla-skilrúmin eru að öllu
leyti úr viði og eru fáanleg í
öllum viðartegundum svo og
bæsuð í ýmsum litum. Sverrir
Hallgrímsson, smíðastofa, fram-
leiðir einnig skrifborð og nú
er verið að hefja framleiðslu á
lágum veggeiningum, er fram-
leiddar verða í öllum viðarteg-
undum. Einnig hefur fyrirtæk-
ið framleitt blómakassa í tveim-
ur stærðum og 4 viðartegund-
um.
Húsnæði smíðastofunnar er
6—700 m2. Framleiðslan fer
fram í rúmgóðum sal búnum
fullkomnum vélum og starfs-
inenn fyrirtækisins eru 8.
Verkfæri og járnvörur hf.
Verkfæri og járnvörur hf.
Dalshrauni 5 er heildverslun,
sem verslar með verkfæri, loft-
pressur, tré og jámsmíðavélar.
Fyrirtækið er orðið 16 ára gam-
alt og hefur starfað á ýmsum
stöðum, en flutti í húsið að
Dalshrauni 5 í nóvember s.l.
Fyrirtækið hcfur umboð fyr-
ir um 30 erlend fyrirtæki, m.a.
fyrirtækið Emco, sem framleið-
ir tré- og járnsmíðabekki. Flutt-
ar eru inn ýmsar gerðir af þeim
bæði fyrir fyrirtæki og til notk-
unar í skólum og á heimilum.
Verkfæri og jámvörur flytur
inn margvísleg verkfæri s.s.
lóðbolta, málbönd, sandpappír,
stálnagla og járnbora. Starfs-
mcnn fyrirtækisins em 3.
Ný
veitingastofa
Gafl-inn
Gafl-inu er nafn á nýrri veit-
ingastofu að Reykjavíkurvegi
68, sem opnuð var í ágúst í
sumar. Það eru þeir Einar Sig-
urðsson og Jón Pálsson, sem
reka veitingastofuna sem er í
mjög vistlegu 200 m2 húsnæði.
Gafl-inn býður livers konar
rét'ti s.s. heita og kalda rétti,
grillrétti, smurt brauð, samlok-
ur, súpur og eftirrétti og í liá'
deginu á hvcrjum degi er boð-
inn réttur dagsins. Þar er einn-
ig útbúinn hvers konar veislu-
matur s.s. heitt og kalt horð og
smurt brauð.
Mikil áhersla er lögð á að
flýta afgreiðslu og getur því
fólk hringt og pantað matinn
áður en það kemur. Opnað er
alla morgna kl. 8.15 og opið er
til kl. 21, nema föstudaga, laug-
ardaga og sunnudaga er opið til
kl. 22. Starfsfólk á veitingastof-
unni Gafl-inn er 11.
FV 3 1977
83