Frjáls verslun - 01.03.1977, Side 84
AUGLYSING
FURUHÚSGÖGIM:
HÚSGÖGN
Húsgögn úr furu njóta
vinsælda
í Furuhúsgögnum, Smiðs-
höfða 13 eru framleidd hús-
gögn úr furu, en húsgögn úr
ljósum viðartegundum njóta
mikilla vinsælda nú. Aðalá-
hersla er lögð á smíði hillu-
samstæðna, en einnig eru fram-
leiddar tvær gerðir af sófasett-
um, sófaborð, hornskápar og
kistlar. Bragi Eggertsson frani-
kvæmdastjóri fyrirtækisins hef-
ur sjálfur hannað húsgögnin.
FURUHILLUSAMSTÆÐUR
Furuihiliusamstæðan er 1.83
m á hæð og einingarnar eru til
90 cm og 60 cm breiðar. Dýpt
á neðri skápunum er 45 cm en
á efxi skápum 27 cm.
Hillusamstæðumum fylgja
glerhurðarskápar, skúffuskáp-
ar með fjórum skúffum, bar-
skápar, hlj ómtækj askápar og
skápar t.d. fyrir leirtau eða
dúka. Sumar hillurnar eru fær-
anlegar. Útskorinn kappi ofan
á hillusamstæðunni getur fylgt.
Furuhillusamstæðan er á hag-
stæðu verði.
FALLEGUR HORNSKÁPUR
Furuhomskápurinn er smíð-
aður í tvennu lagi. Neðri skáp-
ur er lokaður með tveimur hill-
um, en opið hólf og glerhurð er
í efri skáp. Hornskápurinn er
1.85 m á hæð með útsko.rnum
kappa ofan á. Mesta mál frá
horni er 59 cm. Hillusamstæð-
urnar og hornskáparnir eru
pússaðir og lakkaðir með sýru-
hertu lakki.
TVÆR GERÐIR SÓFASETTA
OG FURUKISTLAR FRAM-
LEIDDIR
Framleiddar eru tvær gerðir
af sófasettum. Léttari gerðinni
fylgir 3ja sæta sófi, 2ja sæta
sófi og stóll svo og tvö sófaborð.
Stærra sófaborðið er 120x60
cm og hornborðið 70x70 cm.
Grindin er úr massívri furu,
pússuð og lökkuð. Áklæði er
eftir eigin vali.
Þetta sófasett hefur verið
mjög vinsælt hjá ungu fólki
sérstaklega í sjónvarpsher-
bergi, en einnig verið mikið
keypt í veiðihús og sumarbú-
staði.
Hin gerðin af sófasetti er í
hærri verðflokki með meiri
bólstrun. Grindin er úr massívri
furu með bólstruðum örmum.
Þessu sófasetti fylgja einnig
tvö bo.rð og áklæði er að eigin
vali.
Kistlarnir, sem Furuhúsgögn
hafa framleitt eru úr massívri
furu. Stærð þeirra er 80x45x42.
Þeir eru með læsingu og handr-
aða. Kistlarnir hafa notið mik-
illa vinsælda og hægt er að fá
þá ólakkaða, ef fólk vill skraut-
mála þá.
Öll húsgögnin má fá bæsuð
í brúnum lit. Starfsmenn Furu-
húsgagna eru 4.
84
FV 3 1977